27.01.20 - 18:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Grikkland: Sverrir Ingi hélt hreinu með PAOK - Komið á toppinn

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
PAOK 1 - 0 Volos
Sverrir Ingi Ingason var í byrjunarliði PAOK sem tók á móti Volos í grísku Ofurdeildinni í dag. Sverrir Ingi spilaði allan leikinn í dag, líkt og hann hefur gert í deildinni undanfarna mánuði.
Frá og með leiknum gegn Lamia í október í fyrra hefur Sverrir Ingi byrjað alla leiki hjá PAOK. Hann hefur leikið allar mínútur liðsins ef frá eru taldar síðustu tuttugu mínúturnar í einum bikarleik.

Eina mark leiksins kom úr vítaspyrnu sem Vierinha skoraði úr á 60. mínútu. Markvörður PAOK þurfti ekki að verja skot í leiknum.
Olympiakos, sem var á toppnum fyrir þessa 21. umferð deildarinnar, gerði í gær jafntefli við AEK Aþenu og því gat PAOK komist á toppinn með sigri. PAOK hefur eins stigs forskot á toppnum eins og stendur.