Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 27. janúar 2020 22:23
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Nketiah: Gott að koma til baka - Draumur að spila með Arsenal
Mynd: Getty Images
„Við byrjuðum vel og spiluðum flottan fótbolta," sagði Eddie Nketiah, annar af markaskorurum Arsenal, eftir sigur 1-2 sigur á Bournemouth í 4. umferð ensku bikarkeppninnar.

„Í restina komust þeir aftur inn í leikinn en þrautseigja okkar var frábær."

Nketiah, sem er tvítugur framherji, kom til baka úr láni hjá Leeds fyrr í mánuðinum og var hann spurður um heimkomuna.

„Það er gott að vera kominn til baka. Það var góð reynsla fyrir mig að spila með Leeds. Það er draumur að spila með Arsenal og ég er þakklátur fyrir þetta tækifæri," sagði Nketiah að lokum.
Athugasemdir
banner
banner