Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 27. janúar 2021 11:34
Magnús Már Einarsson
Henderson og Matip með gegn Tottenham
Jordan Henderson.
Jordan Henderson.
Mynd: Getty Images
Jordan Henderson og Joel Matip verða báðir með Liverpool í útileiknum gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld.

Henderson hefur misst af síðustu tveimur leikjum vegna meiðsla og Matip var hvíldur í tapinu gegn Manchester United í enska bikarnum á sunnudag.

„Hendo og Joel æfðu af fullum krafti með liðinu í gær," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, á fréttamannafundi í dag.

Liverpool hefur ekki skorað í fjórum leikjum í röð í ensku úrvalsdeildinni en meira en mánuður er frá síðasta sigurleik liðsins þar.
Athugasemdir
banner
banner