Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 27. febrúar 2021 18:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Frakkland: Sara Björk og Mbappe á skotskónum
Sara Björk
Sara Björk
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kylian Mbappe skoraði tvö mörk þegar PSG vann öruggan 0-4 sigur í Dijon.

Moise Kean og Danilo skoruðu hin mörkin. PSG er í öðru sæti, stigi á eftir Lille sem leikur á morgun. Lyon er svo tveimur stigum á eftir PSG í þriðja sætinu. Mbappe er markahæstur í deildinni með átján mörk, hann hefur skorað fjórum mörkum meira en Memphis Depay.

Í frönsku kvennadeildinni lék Sara Björk Gunnarsdóttir allan leikinn í 0-2 útisigri Lyon á Soyaux. Söru var stillt upp sem framherja í leiknum samkvæmt FlashScore. Sara skoraði fyrra mark Lyon á 27. mínútu með skoti úr teignum eftir að markvörður heimakvenna sló fyrirgjöf fyrir lappir hennar.

Lyon er áfram stigi á eftir PSG í toppbaráttuni. Liðin mætast í næstu umferð deildarinnar, eftir tvær vikur!

Dijon 0 - 4 PSG
0-1 Moise Kean ('6)
0-2 Kylian Mbappe, víti ('32)
0-3 Kylian Mbappe ('51)
0-4 Danilo ('82)

Soyaux 0 - 2 Lyon
0-1 Sara Björk Gunnarsdóttir
0-2 Dzsenifer Marozsan, víti
Athugasemdir
banner
banner
banner