Sevilla 0 -2 Barcelona
0-1 Ousmane Dembele ('29 )
0-2 Lionel Messi ('86 )
0-1 Ousmane Dembele ('29 )
0-2 Lionel Messi ('86 )
Öðrum leik dagsins í spænsku La Liga var rétt í þessu að ljúka. Um var að ræða stórleik Sevilla og Barcelona.
Frakkinn Ousmane Dembele hefur ekki átt frábæru gengi að fagna hjá Barca síðan hann kom frá Dortmund en hann sá um að skora fyrra mark leiksins í dag. Hann skoraði eftir sendingu frá Lionel Messi.
Það var svo Messi sjálfur sem innsiglaði sigurinn með marki á 86. mínútu. Skömmu áður vildi Sevilla fá víti en dómarinn sá ekkert athugavert.
Barcelona er sem stendur í 2. sæti, tveimur stigum frá Atletico. Atletico á tvo leiki til góða og þá getur Real Madrid náð Barca með sigri á morgun.
Athugasemdir