Fotbolti.net
27.02.26 - 11:22
Elvar Geir Magnússon

Meistaradeildin: Liverpool til Istanbúl - Man City gegn Real Madrid

Bikarinn með stóru eyrun.

Bikarinn með stóru eyrun.

Canon

Mynd: EPA

Nú rétt í þessu var dregið í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar. Leikirnir í 16-liða úrslitum verða spilaðir 10/11. mars og 17/18. mars.

Fyrsta viðureignin sem kom upp úr pottunum er heldur betur safarík. Manchester City mætir raðsigurvegurunum í Real Madrid.

Ríkjandi Evrópumeistarar í Paris Saint-Germain mæta Chelsea. Newcastle fær einnig erfitt verkefni og heimsækir Barcelona. Tottenham mætir Atletico Madrid.

Arsenal, sem vann deildarkeppnina, mætir þýska liðinu Bayer Leverkusen.

Evrópuævintýri frænda okkar í Bodö/Glimt heldur áfram í Lissabon, Liverpool fer til Istanbúl og mætir Galatasaray og Bayern München mætir fulltrúum Ítalíu í Atalanta.
Dregið í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar
TENGT EFNI

Dregið í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar

16-liða úrslitin
Manchester City - Real Madrid
Sporting Lissabon - Bodö/Glimt
Chelsea - PSG
Barcelona - Newcastle
Liverpool - Galatasaray
Bayern München - Atalanta
Arsenal - Bayer Leverkusen
Tottenham - Atletico Madrid

Meistaradeildin: Liverpool til Istanbúl - Man City gegn Real Madrid
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.