13:16Drættinum er lokið og þessari textalýsingu líka!Takk fyrir samfylgdina og góða helgi!
13:15Strasbourg - Rijeka
13:15Rakow Czestochowa - FiorentinaAlbert til Póllands
13:14AEK Aþena - NK Celje
13:14Sparta Prag - AZ Alkmaar
13:14Rayo Vallecano - SamsunsporLuigi til Spánar
13:13Shakhtar Donetsk - Lech PoznanGísli Gotti mætir úkraínska liðinu
13:13Mainz - Sigma OlomoucMainz til Tékklands
13:13AEK Larnaca - Crystal PalacePalace til Kýpur
13:12Þeir félagar og meistarar eru byrjaðir að hræra hressilega í pottunum.
13:08Rui Patrício fyrrum landsliðsmarkvörður Portúgals aðstoðar við dráttinn. Hann vann Sambandsdeildina með Roma fyrsta árið sem keppnin var haldin.
13:00Athöfnin er farin af stað 12:47Meðan við bíðum, rifjum upp dráttinn í hinum keppnunum:Meistaradeildin:
Manchester City - Real Madrid
Sporting Lissabon - Bodö/Glimt
Chelsea - PSG
Barcelona - Newcastle
Liverpool - Galatasaray
Bayern München - Atalanta
Arsenal - Bayer Leverkusen
Tottenham - Atletico Madrid
Evrópudeildin:
Freiburg - Genk
Roma - Bologna
Braga - Ferencvaros
Porto - Stuttgart
Real Betis - Panathinaikos
Nottingham Forest - Midtjylland
Lille - Aston Villa
Lyon - Celta Vigo
12:41Leiðin til LeipzigLeikirnir í 16-liða úrslitum verða spilaðir 12. mars og 19. mars. Keppninni lýkur með úrslitaleik í Leipzig 27. maí.
12:39Íslendingar í pottinum:- Albert Guðmundsson með Fiorentina
- Logi Tómasson með Samsunspor
- Gísli Gottskálk Þórðarson með Lech Poznan
12:38Lið sem geta mæst í 16-liða úrslitumStrasbourg eða Rakow Czestochowa gegn Rijeka eða Fiorentina
AEK Aþena eða Sparta Prag gegn AZ Alkmaar eða NK Celje
Rayo Vallecano eða Shakhtar Donetsk gegn Samsunspor eða Lech Poznan
Mainz eða AEK Larnaca gegn Crystal Palace eða Sigma Olomouc
12:37Nú er loks komið að aðalréttinum!Sambandsdeildin, mín uppáhalds keppni! Dregið klukkan 13:00 (eða sirka (13:14 réttara sagt).
12:29Drátturinn í Evrópudeildina í heildLandsliðsmennirnir Elías Rafn Ólafsson og Hákon Arnar Haraldsson munu báðir etja kappi við enskt úrvalsdeildarlið.
Elías mun standa vaktina í marki Midtjylland gegn Nottingham Forest. Liðin mættust í Skírisskógi í deildarkeppninni og þar vann danska liðið 3-2 útisigur.
Hákon og félagar í Lille mæta Aston Villa og þá drógust Sverrir Ingi Ingason og félagar í Panathinaikos gegn Real Betis. Meðal annarra leikja í 16-liða úrslitum er ítalskur slagur milli Roma og Bologna.
27.02.2026 12:25Evrópudeildin: Elías og Hákon mæta enskum úrvalsdeildarliðum
12:18Drættinum í Evrópudeildina er lokiðSambandsdeildin næst á dagskrá 13:00.
12:18Lyon - Celta Vigo
12:17Lille - Aston VillaHákon Arnar og félagar til Birmingham.
12:16Nottingham Forest - MidtjyllandElías Rafn Ólafsson gegn Forest. Liðin mættust í deildarkeppninni þar sem danska liðið vann.
12:16Real Betis - PanathinaikosSverrir Ingi Ingason og félagar til Spánar.
12:15Porto - StuttgartRimma.
12:14Braga - FerencvarosMate og félagar til Portúgals.
12:14Roma - BolognaÍtalskur slagur.
12:14Freiburg - GenkÉg ætla ekki að horfa á þennan leik.
12:13Jæja þeir félagar Maniche og Marchetti eru byrjaðir að hræra í pottunum, nú fara hlutirnir að gerast.
12:12Skemmtilegt myndband meðan við bíðum
Elías landsliðsmarkvörðurinn okkar í spjalli við fjölmiðladeild danska félagsins Midtjylland.
12:08Portúgalinn Maniche aðstoðar Marchetti við dráttinn. Hann vann UEFA Cup 2003 og Meistaradeildina ári síðar með Porto. Hann er ekki sleipur á svellinu þegar kemur að ensku, mjög hikandi, en lítur vel út.
12:04Já og ef þið voruð að pæla í því þá eru Marchetti og Claudio Ranieri vissulega tvífarar.
12:03Allt í öruggum höndum
Mynd: EPA
Athöfnin er farin af stað og eins og áðan er það kóngurinn Giorgio Marchetti sem sér um að allt fari vel og rétt fram. Í þessum skrifuðu orðum er verið að kynna liðin sem eru í pottunum með dramatísku myndbandi. Gæsahúð... eða svona allt að því.
11:54Stutt í athöfnina - Hún hefst 12:00Miðað við Meistaradeildardráttinn þá verður byrjað að draga sirka 12:14!
Hægt er að horfa á dráttinn með því að smella hérna 11:50Formleg afsökunarbeiðni til Tottenham samfélagsinsÍ lista mínum yfir leiki í frétt um 16-liða úrslita Meistaradeildarinnar gleymdist leikur Tottenham og Atletico Madrid. Tottenham samfélagið liggur á hliðinni og ég bið það afsökunar (sérstaklega Munda). Það er búið að bæta þeirri viðureign.
Ég mun horfa!
11:43Leiðin til IstanbúlLeikirnir í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar verða spilaðir 12. mars og 19. mars. Keppninni lýkur svo með úrslitaleik 20. á Besiktas vellinum í Istanbúl.
11:38Íslendingar í pottinum:- Hákon Arnar Haraldsson er lykilmaður hjá Lille
- Elías Rafn Ólafsson ver mark Midtjylland
- Sverrir Ingi Ingason er í vörn Panathinaikos
11:37Hvaða möguleikar eru í Evrópudeildinni?Við eigum svar við því
Lyon eða Aston Villa mæta Lille eða Celta Vigo
FC Midtjylland eða Real Betis mæta Panathinaikos eða Nottingham Forest
Porto eða Braga mæta Ferencvaros eða Stuttgart
Freiburg eða AS Roma mæta Bologna eða Genk
11:33Dregið í Evrópudeildina klukkan 12 - Við fylgjumst einnig með þeim drætti beint hér!
11:30Drátturinn í heildFyrsta viðureignin sem kom upp úr pottunum er heldur betur safarík. Manchester City mætir raðsigurvegurunum í Real Madrid.
Ríkjandi Evrópumeistarar í Paris Saint-Germain mæta Chelsea. Newcastle fær einnig erfitt verkefni og heimsækir Barcelona. Tottenham mætir Atletico Madrid.
Arsenal, sem vann deildarkeppnina, mætir þýska liðinu Bayer Leverkusen.
Evrópuævintýri frænda okkar í Bodö/Glimt heldur áfram í Lissabon, Liverpool fer til Istanbúl og mætir Galatasaray og Bayern München mætir fulltrúum Ítalíu í Atalanta.
11:19Drættinum er lokið!Spennandi viðureignir framundan, en þessari lýsingu er ekki lokið. Við munum á eftir fylgjast með drættinum í Evrópudeildina og Sambandsdeildina. 12:00 og 13:00.
11:17Arsenal - LeverkusenÞýskaland á toppliðið.
11:16Bayern München - AtalantaÞórir Hákonar fer til Bergamó.
11:16Tottenham - Atletico Madrid
11:16Liverpool - GalatasarayÞað er gaman í Istanbúl
11:15Barcelona - NewcastleNewcastle á Nývangi
11:15Chelsea - PSG
11:14Sporting Lissabon - Bodö/GlimtLissabon og Bodö.
11:14Man City - Real MadridRosalegt
11:14Rakitic í vandræðum með að opna kúlurnarMarchetti mætir til að hjálpa.
11:13Marchetti og Rakitic eru byrjaðir að hræra í pottunum!Spenna í loftinu.
11:11Ekkert dansatriði???Mínir menn hjá UEFA eru að valda mér vonbrigðum. Vonir mínar um að fá töframann voru kannski frekar veikar en mér sýnist við ekki einu sinni fá dansatriði.
Drátturinn er handan við hornið!
11:10Farið yfir fyrirkomulagið á drættinum - Þessi lið geta mæst:Arsenal eða Bayern München gegn Bayer Leverkusen eða Atalanta
Liverpool eða Tottenham gegn Atletico Madrid eða Galatasaray
Chelsea eða Barcelona gegn Newcastle eða PSG
Manchester City eða Sporting gegn Bodö/Glimt eða Real Madrid
11:08Ivan Rakitic aðstoðar við dráttinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Var magnaður leikmaður. Lék 106 landsleiki fyrir Króatíu og nokkra eftirminnilega gegn Íslandi. Vann Meistaradeildina með Barcelona og Evrópudeildina tvisvar með Sevilla. Ég er aðdándi.
11:06Ævintýri enn gerastGiorgio Marchetti er mættur í UEFA jakkafötunum sínum, glæsilegur að vanda. Fulltrúar Bodö/Glimt komu í mynd. Heldur betur ævintýri hjá norska liðinu í Evrópu. Liðið sló út Inter í umspilinu eftir að hafa unnið Manchester City og Atletico Madrid í deildarkeppninni.
11:02Bikarinn með stóru eyrun
11:00Klukkan er orðin!Lopinn verður þó teygður vel... þið eruð farin að þekkja þetta.
10:43Horfðu á dráttinn í beinni 10:11Hinir ýmsu molar varðandi dráttinn
Mynd: EPA
Það verður að sjálfsögðu Giorgio Marchetti, hinn ítalski Birkir Sveins, sem mun sjá um að draga. Bestur í Evrópu að draga og aðeins einu sinni hefur dráttur mislukkast hjá honum. Athöfnin verður í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss.
Geta lið frá sama landi mæst?Já. Lið sem mættust í deildarkeppninni geta líka mæst aftur.
Eru janúarkaupin með?Já. Leikmenn sem voru keyptir í janúarglugganum geta verið skráðir til leiks eftir deildarkeppnina.
Hvenær verða 16-liða úrslitin?Leikirnir í 16-liða úrslitum verða spilaðir 10/11. mars og 17/18. mars.
10:01Hverjum geta ensku liðin mætt?Ef við skoðum möguleika ensku liðanna þá getur Arsenal dregist gegn Bayer Leverkusen eða Atalanta.
Atletico Madrid og Galatasaray eru örugg með enska mótherja. Annað liðið mun fá Liverpool en hitt Tottenham.
Möguleiki er á enskum slag en Chelsea gæti mætt Newcastle. Chelsea á einnig möguleika á að fá PSG og Newcastle gæti fengið Barcelona.
Manchester City getur mætt Real Madrid eða fengið tækifæri til að hefna sín á Bodö/Glimt.
10:00Leiðin til Búdapest!
Mynd: EPA
Margir þekkja leiðina til Búdapest, enginn betur en Mix vinur minn, en í þeirri skemmtilegu borg verður úrslitaleikur Meistaradeildarinnar þetta árið.
Viktor Orbán tekur á móti flestum opnum örmum á Puskás Aréna þann 30. maí. Sextán lið sem eiga enn drauma um að fara til Búdapest.
09:57Góðan og gleðilegan daginn!Setjið Meistaradeildarstefið í eyrun, því við erum að fara að fylgjast með drættinum í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar!
Athöfnin hefst klukkan 11:00 og ég verð fyrir miklum vonbrigðum ef við fáum ekki tónlistaratriði og jafnvel dans... ég væri til í töframann.