Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 27. mars 2020 21:00
Ívan Guðjón Baldursson
Chelsea hefur áhuga á Manuel Neuer
Mynd: Getty Images
Bild og Goal greina frá áhuga Chelsea á Manuel Neuer, landsliðsmarkverði Þýskalands og aðalmarkverði FC Bayern undanfarinn áratug.

Neuer, sem á 34 ára afmæli í dag, á aðeins rúmt ár eftir af samningi sínum við Bayern og eru ýmis félög áhugasöm um að tryggja sér þjónustu hans.

Samningsviðræður Neuer og Bayern hafa ekki gengið sérlega vel. Markvörðurinn vill stóran og langan samning en félagið er ekki á sömu blaðsíðu og vill frekar semja til skamms tíma.

Neuer vill þó ekki halda á önnur mið samkvæmt heimildarmönnum Goal. Honum líkar vel við lífið í Þýskalandi og á í afar góðu sambandi við Hansi Flick, þjálfara Bayern.

Neuer vill ólmur vinna Meistaradeildina aftur með Bayern, en hann varði mark liðsins í úrslitaleiknum gegn Borussia Dortmund fyrir sjö árum.
Athugasemdir
banner
banner