Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
laugardagur 27. apríl
Besta-deild kvenna
þriðjudagur 23. apríl
föstudagur 19. apríl
þriðjudagur 16. apríl
Meistarar meistaranna konur
mánudagur 15. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 12. apríl
Besta-deild karla
þriðjudagur 9. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 8. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 5. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 1. apríl
Meistarar meistaranna
sunnudagur 31. mars
Enska úrvalsdeildin
föstudagur 29. mars
Úrslitaleikur Lengjubikars kvenna
miðvikudagur 27. mars
Úrslitaleikur Lengjubikarsins
þriðjudagur 26. mars
Umspilsleikur um EM sæti
U21 karla - EM 25 undankeppni
fimmtudagur 21. mars
EM umspilið
miðvikudagur 20. mars
Lengjubikar karla - Undanúrslit
sunnudagur 10. mars
Enska úrvalsdeildin
þriðjudagur 27. febrúar
Landslið kvenna - Þjóðadeild umspil
föstudagur 23. febrúar
fimmtudagur 1. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
fimmtudagur 18. janúar
Vináttulandsleikur
sunnudagur 14. janúar
fimmtudagur 14. desember
Sambandsdeild UEFA
föstudagur 8. desember
Úrslitaleikur Bose-mótsins
þriðjudagur 5. desember
Þjóðadeild kvenna
mánudagur 4. desember
Umspil fyrir HM U20
föstudagur 1. desember
Þjóðadeild kvenna
fimmtudagur 30. nóvember
Sambandsdeild UEFA
sunnudagur 19. nóvember
Undankeppni EM
fimmtudagur 9. nóvember
Sambandsdeild UEFA
þriðjudagur 31. október
Landslið kvenna - Þjóðadeild
föstudagur 27. október
fimmtudagur 26. október
Sambandsdeild UEFA
miðvikudagur 18. október
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
þriðjudagur 17. október
Undankeppni EM
föstudagur 13. október
þriðjudagur 10. október
Meistaradeild kvenna
sunnudagur 8. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 5. október
Sambandsdeild UEFA
mánudagur 2. október
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 1. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 29. september
Fótbolti.net bikarinn
fimmtudagur 28. september
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 26. apríl
Engin úrslit úr leikjum í dag
þri 27.apr 2021 09:45 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net - 1. sæti: Valur

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Valur vinni Pepsi Max-deildina í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. Valsmenn verja Íslandsmeistaratitil sinn ef spáin rætist.

Patrick Pedersen.
Patrick Pedersen.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rasmus Christiansen.
Rasmus Christiansen.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hannes Þór Halldórsson.
Hannes Þór Halldórsson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristinn Freyr Sigurðsson.
Kristinn Freyr Sigurðsson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Origo völlurinn, heimavöllur Vals.
Origo völlurinn, heimavöllur Vals.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birkir Már Sævarsson.
Birkir Már Sævarsson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Smárason.
Arnór Smárason.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tryggvi Hrafn Haraldsson byrjar á meiðslalistanum.
Tryggvi Hrafn Haraldsson byrjar á meiðslalistanum.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
 Johannes Vall.
Johannes Vall.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. Valur 119 stig
2. Breiðablik 109 stig
3. FH 98 stig
4. KR 91 stig
5. KA 78 stig
6. Stjarnan 69 stig
7. Víkingur 57 stig
8. Fylkir 56 stig
9. HK 40 stig
10. Keflavík 28 stig
11. ÍA 23 stig
12. Leiknir 14 stig

Um liðið: Valsmenn urðu Íslandsmeistarar í fyrra. Þrátt fyrir að mótið hafi ekki verið klárað voru þeir vel að titlinum komnir og enginn mótmælir því að titillinn var verðskuldaður. Eftir baslið og vonbrigðin 2019 svöruðu menn á faglegan hátt.



Þjálfari - Heimir Guðjónsson: Heimir er einn besti þjálfari Íslands. Sannur sigurvegari og hans stjóratíð hjá Val fór af stað á öflugan hátt á síðasta ári. Heimir gerir miklar kröfur á sína leikmenn og er afskapleg klókur. Í vetur hefur Valsliðið æft af miklum krafti og eytt mörgum dögum saman á Hlíðarenda. Félagið steig næsta skref í að búa til atvinnumannaumhverfi.

Styrkleikar: Valur hefur gríðarlega öflugt þjálfarateymi og flotta aðstöðu og umhverfi. Hefðin er til staðar og leikmenn sem þekkja það að vinna titla. Liðið er gríðarlega heilsteypt, með mikla breidd og reynslu og getur unnið sigra á ólíka vegu. Valur getur klárað leiki þrátt fyrir að ná sér ekki almennilega á strik. Tveir íslenskir landsliðsmenn í byrjunarliðinu, Hannes og Birkir.

Veikleikar: Þeir þóttu virka þungir í síðasta æfingaleik fyrir mót, tapi gegn Stjörnunni. Eru búnir að missa öfluga leikmenn, þrír sem valdir voru í úrvalslið deildarinnar í fyrra eru horfnir á braut. Tryggvi Hrafn Haraldsson er á meiðslalistanum í byrjun móts. Mæta ríkjandi meistarar hungraðir til leiks eða mun tímabilið minna á 2019?

Lykilmenn: Birkir Már Sævarsson og Patrick Pedersen. Birkir hefur verið frábær á undirbúningstímabilinu og er ekkert að gefa eftir. Enda finnur hann lyktina af 100. landsleiknum! Allt íslenskt fótboltaáhugafólk veit hvað Patrick Pedersen gert. Það er krafa á hann að skora og skapa í hverjum einasta fótboltaleik sem hann spilar.

Fantabrögð mæla með í Draumaliðsdeild Eyjabita:
Sokkaskúffan hans Birkis Más Sævarssonar tæmdist í fyrra en hann er búinn að fylla á hana og verður mættur að dreifa sokkum í sumar, nítjánda árið í röð. Eins og ellefta boðorðið segir: Þú skalt eigi efast um Birki Má. Patrick Pedersen er þarna á 12 og mun raða inn stigum í sumar. Skemmtilegt value gæti verið í Kristni Frey á 9 eða Orra Sigurði á 5 en það er ef þeir spila alla leiki í sumar.
Smelltu hér til að fara í Draumaliðsdeild Eyjabita

Hlaðvarpsþátturinn Ungstirnin mælir með:
Birkir Heimisson er fjölhæfur og efnilegur miðjumaður fæddur 2000 sem getur leyst allar miðjustöðurnar og jafnvel hafsent. Birkir er uppalinn hjá Þór Akureyri og átti hann frábæra sex leiki árið 2016 fyrir Þórsara aðeins 16 ára, þá kom hollenska liðið Heerenveen og keypti Birki og spilaði Birkir í þrjú ár fyrir unglingalið Heerenveen. Birkir kom svo aftur heim til Íslands árið 2020 og gekk til liðs við Val, hann hefur ekki fengið mikið traust undir Heimis Guðjónssonar en auðvitað gríðarlega erfitt að komast inn í sterkt lið Valsara. Sumarið 2021 gæti klárlega verið tímabilið sem Birkir springur út í góðu liði Vals, svipað eins og Valgeir Lunddal gerði í fyrra enda er Birkir mjög hæfileikaríkur leikmaður.

Spurningarnar: Eru nýju leikmennirnir jafn góðir og þeir sem hurfu á braut? Er hungur á Hlíðarenda? Vantar hraða í sóknina? Verður Patrick Pedersen leikmaður mótsins?

Völlurinn: Origo-völlurinn á Hlíðarenda er glæsilegt mannvirki. Stemningin í kringum heimaleiki Vals hefur verið góð undanfarin ár en áhorfendur geta brugðið sér í Fjósið fyrir leiki og hitað upp með mat og drykk.

„Nýju leikmennirnir koma vel inní hópinn"



Aðstoðarþjálfarinn segir - Túfa (Srdjan Tufegdzic)
„Spáin kemur okkur ekki á óvart og sú sama og fyrir tímabilið 2020 og sem ríkjandi Íslandsmeistarar þá er þetta eðlileg spá. Markmið Vals er ávallt það sama, vera í toppbaráttu og berjast um alla titla sem eru í boði. Það sem skiptir okkur mestu máli er að við leggjum hart að okkur og sköpum sterkan liðsheild, þá gerast góðir hlutir. Við erum mjög sáttir við leikmannahópinn, nýju leikmennirnir koma vel inní hópinn. Erum búnir að æfa mjög vel og getum ekki beðið eftir að byrja Íslandsmótið 2021."

Komnir
Almarr Ormarsson frá KA
Arnór Smárason frá Lilleström
Christian Köhler frá Esbjerg
Kristófer Jónsson frá Haukum
Johannes Vall frá Ljungskile
Tryggvi Hrafn Haraldsson frá Lilleström

Farnir
Aron Bjarnason til Ujpest (Var á láni)
Eiður Aron Sigurbjörnsson í ÍBV
Einar Karl Ingvarsson í Stjörnuna
Kasper Högh til Randers (Var á láni)
Lasse Petry til HB Köge
Valgeir Lunddal Friðriksson í Hacken

Fyrstu fimm leikir Vals:
30. apríl Valur - ÍA
9. maí FH - Valur
13. maí Valur - HK
17. maí KR - Valur
21. maí Valur - Leiknir

Sjá einnig:
Hin hliðin - Kristófer Jónsson
Hin hliðin - Rasmus Christiansen

Leikmenn Vals:
1 - Hannes Þór Halldórsson (m)
2 - Birkir Már Sævarsson
3 - Johannes Vall
4 - Christian Köhler
5 - Birkir Heimisson
6 - Sebastian Hedlund
7 - Haukur Páll Sigurðsson
8 - Arnór Smárason
9 - Patrick Pedersen
10 - Kristinn Freyr Sigurðsson
11 - Sigurður Egill Lárusson
12 - Tryggvi Hrafn Haraldsson
13 - Rasmus Christiansen
15 - Sverrir Páll Hjaltisted
17 - Andri Adolphsson
19 - Kristófer Jónsson
20 - Orri Sigurður Ómarsson
21 - Magnus Egilson
25 - Sveinn Sigurður Jóhannesson
26 - Sigurður Dagsson
27 - Kristófer André Kjeld Cardoso
28 - Bele Alomerovic
29 - Kári Daníel Alexandersson
33 - Almarr Ormarsson
77 - Kaj Leo í Bartalsstovu

Spámennirnir: Arnar Daði Arnarsson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Gunnar Birgsson, Hafliði Breiðfjörð, Ingólfur Sigurðsson, Magnús Már Einarsson, Sverrir Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Tómas Þór Þórðarson
Athugasemdir
banner