Baleba fer ekki til Man Utd í sumar - Newcastle enn í framherjaleit - Ederson til Galatasaray?
banner
banner
laugardagur 16. ágúst
Mjólkurbikar kvenna
fimmtudagur 14. ágúst
Besta-deild kvenna
Forkeppni Evrópudeildarinnar
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
mánudagur 11. ágúst
Besta-deild karla
laugardagur 9. ágúst
Lengjudeild karla
Besta-deild kvenna
miðvikudagur 6. ágúst
Besta-deild karla
mánudagur 4. ágúst
Besta-deild kvenna
laugardagur 2. ágúst
miðvikudagur 30. júlí
Lengjudeild karla
Lengjudeild kvenna
Forkeppni Meistaradeildarinnar
Lengjudeild karla
mánudagur 28. júlí
Besta-deild karla
laugardagur 26. júlí
2. deild karla
Besta-deild karla
Lengjudeild karla
fimmtudagur 24. júlí
Besta-deild kvenna
Lengjudeild kvenna
Besta-deild kvenna
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
Besta-deild kvenna
Lengjudeild kvenna
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
miðvikudagur 23. júlí
þriðjudagur 22. júlí
Forkeppni Meistaradeildarinnar
sunnudagur 20. júlí
Besta-deild karla
laugardagur 16. ágúst
Championship
Blackburn - Birmingham - 14:00
Portsmouth 1 - 2 Norwich
0 2 Josh Sargent ('14)
Mirko Topic - Norwich ('25, gult spjald)
Jose Cordoba - Norwich ('37, gult spjald)
Regan Poole - Portsmouth ('58, gult spjald)
0 2 Colby Bishop ('80, Misnotað víti)
1 2 Adrian Segecic ('84)
John Swift - Portsmouth ('90, gult spjald)
Connor Ogilvie - Portsmouth ('90, gult spjald)
Harry Darling - Norwich ('90, gult spjald)
Watford - QPR - 14:00
Swansea - Sheffield Utd - 14:00
Millwall - Middlesbrough - 14:00
Wrexham 2 - 3 West Brom
Lewis Brunt - Wrexham ('27, gult spjald)
1 1 Lewis O'Brien ('42)
1 2 Jed Wallace ('74)
1 3 Isaac Price ('81)
Toby Samuel Smith - Wrexham ('90, gult spjald)
2 3 Toby Samuel Smith ('90)
Sheff Wed - Stoke City - 14:00
Derby County 3 - 5 Coventry
1 1 Callum Elder ('12)
1 2 Haji Wright ('25, víti)
Matt Clarke - Derby County ('45, gult spjald)
2 2 Carlton Morris ('45, víti)
Brandon Thomas-Asante - Coventry ('45, gult spjald)
3 2 Ebou Adams ('50)
Matt Grimes - Coventry ('55, gult spjald)
Ryan Nyambe - Derby County ('62, gult spjald)
3 3 Brandon Thomas-Asante ('72)
3 4 Ephron Mason-Clark ('75)
Haji Wright - Coventry ('76, gult spjald)
3 5 Victor Torp ('79)
Milan van Ewijk - Coventry ('83, gult spjald)
Preston NE - Leicester - 14:00
Bristol City - Charlton Athletic - 14:00
Úrvalsdeildin
Aston Villa 0 - 0 Newcastle
Boubacar Kamara - Aston Villa ('58, gult spjald)
Ezri Konsa - Aston Villa ('66, rautt spjald)
Brighton - Fulham - 14:00
Sunderland - West Ham - 14:00
Tottenham - Burnley - 14:00
Wolves - Man City - 16:30
Bikarkeppni
BFC Dynamo 1 - 2 Bochum
Willi Reincke - BFC Dynamo ('30, gult spjald)
Can Karatas - BFC Dynamo ('33, gult spjald)
Mats Pannewig - Bochum ('39, gult spjald)
1 0 Jan-Rafael Shcherbakovski ('46)
Larry Oellers - BFC Dynamo ('81, rautt spjald)
1 1 Noah Loosli ('86)
Tobias Gunte - BFC Dynamo ('94, gult spjald)
1 1 Matus Bero ('94, Misnotað víti)
Cajetan Lenz - Bochum ('95, gult spjald)
Ivan Knezevic - BFC Dynamo ('96, gult spjald)
Rufat Dadashov - BFC Dynamo ('104, rautt spjald)
1 2 ('106)
Pirmasens 1 - 2 Hamburger
1 0 Yannick Griess ('53)
Jordan Torunarigha - Hamburger ('63, gult spjald)
Kevin Buchler - Pirmasens ('71, gult spjald)
Manuel Grunnagel - Pirmasens ('86, gult spjald)
1 1 Gui Ramos ('90)
Miguel Deho - Pirmasens ('98, gult spjald)
Nico Wiltz - Pirmasens ('99, gult spjald)
1 2 Ransford Konigsdorffer ('100)
Michael Muller - Pirmasens ('111, gult spjald)
Bahlinger SC 0 - 0 Heidenheim
Hansa 0 - 0 Hoffenheim
Hemelingen - Wolfsburg - 13:30
Illertissen - Nurnberg - 13:30
Eintracht Norderstedt 0 - 0 St. Pauli
Sandhausen 0 - 0 RB Leipzig
Energie - Hannover - 16:00
Sportfreunde Lotte - Freiburg - 16:00
Lubeck - Darmstadt - 16:00
WORLD: International Friendlies
Lebanon U-23 - Syria U-23 - 14:00
Hungary U-17 - Ireland U-17 - 16:00
Iceland U-17 - Turkey U-17 - 16:00
Bikarkeppni
Venezia - Mantova - 16:00
Como - Sudtirol - 16:30
Cremonese - Palermo - 19:15
Cagliari - Virtus Entella - 18:45
Toppserien - Women
SK Brann W - Valerenga W - 14:00
Lyn W 2 - 1 Kolbotn W
Rosenborg W 0 - 0 Honefoss W
- Rosenborg W ('72, gult spjald)
- Rosenborg W ('75, gult spjald)
Roa W 1 - 1 Lillestrom W
Úrvalsdeildin
Spartak - Zenit - 14:30
Akhmat Groznyi - Kr. Sovetov - 17:30
Baltica 1 - 0 Lokomotiv
Vladislav Saus - Baltica ('32, gult spjald)
Nikolai Titkov - Baltica ('57, gult spjald)
Maksim Petrov - Baltica ('65, gult spjald)
La Liga
Alaves - Levante - 19:30
Mallorca - Barcelona - 17:30
Valencia - Real Sociedad - 19:30
Damallsvenskan - Women
Alingsas W 1 - 2 Brommapojkarna W
Kristianstads W 0 - 0 Rosengard W
0 2 ('21)
0 3 ('36)
0 4 ('69)
0 5 ('90)
Elitettan - Women
Ekkert mark hefur verið skorað
Uppsala W 0 - 3 KIF Orebro W
Mallbacken W 0 - 1 Bollstanas W
Orebro SK W 1 - 2 Trelleborg W
mið 21.apr 2021 14:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net - 9. sæti: HK

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að HK muni enda í 9. sæti í Pepsi Max-deildinni í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. HK endar á kunnuglegum stað í sumar ef spáin rætist.

Danski varnarmaðurinn Martin Rauschenberg.
Danski varnarmaðurinn Martin Rauschenberg.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Atli Arnarson er drjúgur á miðjunni.
Atli Arnarson er drjúgur á miðjunni.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kantmaðurinn leikni Birnir Snær Ingason.
Kantmaðurinn leikni Birnir Snær Ingason.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ívar Örn Jónsson, vinstri bakvörður.
Ívar Örn Jónsson, vinstri bakvörður.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framherjinn stóri og stæðilegi Stefan Alexander Ljubicic
Framherjinn stóri og stæðilegi Stefan Alexander Ljubicic
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Arnar Barðdal fagnar marki.
Jón Arnar Barðdal fagnar marki.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. HK 40 stig
10. Keflavík 28 stig
11. ÍA 23 stig
12. Leiknir 14 stig

Um liðið: HK-ingar hafa náð að festa sig í sessi í efstu deild en þeir hafa undanfarin tvö ár endað í 9. sæti deildarinnar og verið lausir við falldrauginn undir lok móts. Nú er HK að fara inn í þriðja tímabilið í röð á meðal þeirra bestu og stefnan er sett á að fara ennþá hærra.



Þjálfari - Brynjar Björn Gunnarsson Á fyrsta ári fór Brynjar Björn með HK upp í Pepsi Max-deildina og hann hefur haldið áfram uppbyggingu þar. Viktor Bjarki Arnarsson er honum til aðstoðar en þeir áttu báðir langa og farsæla ferla sem leikmenn og geta deilt úr viskubrunni sínum.

Styrkleikar: HK-ingar unnu sterka sigra gegn Breiðabliki og KR í fyrra og hafa sýnt að þeir geta náð stigum gegn öllum liðum í deildinni. Í vetur hafa HK-ingar haldið boltanum meira í leikjum en þeir gerðu áður og þeir stefna á að hafa fleiri vopn í sóknarleiknum. Leikmennirnir hafa margir hverjir spilað lengi saman og liðsandinn er öflugur hjá HK-ingum auk þess sem breiddin er alltaf að aukast í hópnum.

Veikleikar: Varnarleikurinn var miklu verri á síðasta tímabili en árið 2019. HK fékk á sig sjö mörkum fleira í fyrra þrátt fyrir að fjórir leikir hafi verið eftir þegar mótinu var slaufað. Bæta þarf varnarleikinn í sumar. HK hefur vantað afgerandi markaskorara en markahæsti leikmaður liðsins í fyrra var með fimm mörk. Valgeir Valgeirsson gat brotið upp leiki í fyrra og gert óvænta hluti. Ólíklegt er að hann spili með HK í sumar og erfitt verður að fylla skarð hans.

Lykilmenn: Birnir Snær Ingason og Martin Rauschenberg. Birnir er gífurlega hæfileikaríkur leikmaður sem skemmtilegt er fyrir áhorfendur að fylgjast með. Leikmaður sem getur leikið varnarmenn andstæðinganna grátt. Rauschenberg kom á láni frá Stjörnunni í fyrra og styrkti varnarleikinn í Kórnum. Það mun áfram mæða mikið á honum í sumar.

Fantabrögð mæla með í Draumaliðsdeild Eyjabita:
Birkir Valur var ansi góður Fantasy leikmaður áður en hann fór í atvinnumennsku og við reiknum með að hann hafi ekki versnað við það. Hins vegar verður að segjast að Birnir Snær Ingason á 7,5 og Ásgeir Marteins á 6,5 ættu að enda stigahæstir í liðinu. Þetta er kannski 51-49 fyrir Birni.
Smelltu hér til að fara í Draumaliðsdeild Eyjabita

Hlaðvarpsþátturinn Ungstirnin mælir með: Stefán Alexander Ljubicic, kraftmikill framherji fæddur 1999 sem kom til HK í fyrra eftir að hafa verið að mála hjá Keflavík, Grindavík og Brighton. Fékk ekki mikið traust á síðasta tímabili en hann fékk aðeins rúmar 22 mínútur að meðaltali í 12 leikjum í Pepsi Max deildinni og skoraði aðeins 1 mark. Það virðist hins vegar að Brynjar Björn er farinn að treysta á framherjann kraftmikla en Stefán spilaði 5 leiki í Lengjubikarnum og skoraði 3 mörk. HK-ingum hafa vantað stöðugan markaskorara lengi vel og það gæti verið að Stefán sé sá maður.

Spurningarnar: Finnur HK markaskorara? Verður varnarleikurinn þéttari en í fyrra? Getur HK tekið næsta skrefið eða er liðið fast í 9. sætinu? Mun liðið brenna sig á að hafa ekki sótt meiri liðsstyrk?

Völlurinn: HK er eina liðið í Pepsi Max-deildinni sem er með heimavöll innandyra. HK-ingar hafa gert gott vígi í Kórnum og erfitt er að fara þangað í heimsókn.

„Viljum stefna hærra og taka næsta skref"


Markvörðurinn segir - Arnar Freyr Ólafsson
„Spáin kemur mér núll á óvart þar sem við höfum lent í 9. sæti seinustu tvö ár. En auðvitað er það ekki það sæti sem við ætlum okkur að lenda í, við viljum stefna hærra og taka næsta skref sem lið og bæta árangurinn okkar í efstu deild. Við ætlum okkur að gera betur en við höfum gert seinustu ár, fyrsta skrefið í því er að vinna fleiri leiki en við höfum gert í þessari deild. Svo verðum við líka að fá færri mörk á okkur en við gerðum í fyrra. Það er mikil spenna fyrir sumrinu, búinn að vera langur vetur með stoppum og æfingar takmörkunum. þannig maður er bara spenntur að fara spila alvöru leiki."

Komnir
Birkir Valur Jónsson frá Spartak Trnava (Var á láni)
Ívan Óli Santos frá ÍR
Örvar Eggertsson frá Fjölni

Farnir
Alexander Freyr Sindrason til Fjölnis á láni
Ari Sigurpálsson til Bologna (Var á láni)
Hörður Árnason hættur
Valgeir Valgeirsson til Brentford á láni
Þórður Þorsteinn Þórðarson í ÍA (Var á láni)

Fyrstu fimm leikir HK
1. maí HK - KA
8. maí HK - Fylkir
13. maí Valur - HK
17. maí HK - FH
21. maí HK - ÍA

Sjá einnig:
Hin Hliðin - Leifur Andri Leifsson
Hin Hliðin - Jón Arnar Barðdal

Leikmenn HK:
Arnar Freyr Ólafsson
Sigurður Hrannar Björnsson
Birkir Valur Jónsson
Leifur Andri Leifsson
Guðmundur Þór Júlíusson
Atli Arnarsson
Ólafur Örn Eyjólfsson
Ásgeir Marteinsson
Ásgeir Börkur Ásgeirsson
Arnþór Ari Atlason
Birnir Snær Ingason
Bjarni Gunnarsson
Breki Muntaga Jallow
Jón Arnar Barðdal
Ívan Óli Santos
Örvar Eggertsson
Andri Már Harðarson
Bjarni Páll Runólfsson
Eiður Atli Rúnarsson
Ólafur Örn Ásgeirsson

Spámennirnir: Arnar Daði Arnarsson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Gunnar Birgsson, Hafliði Breiðfjörð, Ingólfur Sigurðsson, Magnús Már Einarsson, Sverrir Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Tómas Þór Þórðarson
Athugasemdir