Anton Ari Einarsson, markvörður Breiðabliks, hefur undirritað nýjan tveggja ára samning við félagið, en þetta tilkynnti hann eftir 4-0 stórsigurinn á Þór í kvöld.
Lestu um leikinn: Breiðablik 4 - 0 Þór
Landsliðsmaðurinn kom til Breiðabliks árið 2019 frá Val og tók strax við sem aðalmarkvörður liðsins.
Samningur hans átti að renna út eftir þetta tímabil en nú er það staðfest að hann verður áfram eftir að hafa samþykkt nýjan tveggja ára samning.
Hann verður áfram hjá Blikum út 2028 sem er fagnaðarefni fyrir Blika enda gríðarlega mikilvægur partur af liðinu.
Í kvöld var hann næstbesti leikmaður Blika í skýrslu Fótbolti.net en umsögnin um hann hljómaði svo: „Ótrúlegar vörslur, ótrúleg frammistaða og alveg nálægt maður leiksins að mínu mati,“ sagði Viktor Ingi Valgarðsson um Anton Ara.
„Takk kærlega fyrir stuðninginn í kvöld, Blikar. Þetta var góður leikur hjá okkur öllum, clean sheet, fjögur mörk og við erum ánægðir með það. Svo er ég ótrúlega ánægður með það að ég er búinn að skrifa undir nýjan samning til 2028 og það gleður mig ekkert smá mikið að fá að vera með ykkur þangað til,“ sagði Anton Ari á vefsvæði Blika á Facebook í kvöld.
Anton Ari, sem er 31 árs gamall, hefur tvisvar unnið Bestu deildina með Blikum. Hann varð fyrst meistari með liðinu árið 2022 og síðan aftur fyrir tveimur árum.
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. KR | 4 | 4 | 0 | 0 | 18 - 8 | +10 | 12 |
| 2. Víkingur R. | 4 | 3 | 1 | 0 | 10 - 3 | +7 | 10 |
| 3. Valur | 4 | 3 | 0 | 1 | 10 - 5 | +5 | 9 |
| 4. Fram | 4 | 2 | 1 | 1 | 11 - 6 | +5 | 7 |
| 5. Stjarnan | 4 | 2 | 0 | 2 | 10 - 11 | -1 | 6 |
| 6. Þór | 3 | 2 | 0 | 1 | 5 - 6 | -1 | 6 |
| 7. Breiðablik | 3 | 1 | 2 | 0 | 2 - 1 | +1 | 5 |
| 8. Keflavík | 4 | 1 | 1 | 2 | 5 - 7 | -2 | 4 |
| 9. ÍA | 4 | 0 | 2 | 2 | 4 - 9 | -5 | 2 |
| 10. KA | 4 | 0 | 1 | 3 | 4 - 8 | -4 | 1 |
| 11. FH | 4 | 0 | 1 | 3 | 5 - 11 | -6 | 1 |
| 12. ÍBV | 4 | 0 | 1 | 3 | 5 - 14 | -9 | 1 |



