Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 27. apríl 2026 21:26
Brynjar Ingi Erluson
Besta deildin: Valur hafði betur gegn Stjörnunni í fjörugum leik - Blikar og Víkingar unnu með fjórum
Elías Már skoraði tvennu fyrir Víking
Elías Már skoraði tvennu fyrir Víking
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð Ingvarsson skoraði í sigri Blika
Davíð Ingvarsson skoraði í sigri Blika
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tryggvi Hrafn var frábær með Val
Tryggvi Hrafn var frábær með Val
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik, Valur og Víkingur unnu flotta sigra í 4. umferð Bestu deildar karla í kvöld.

Valsarar eru komnir í gírinn og hafa fundið sig eftir óvænt tap gegn Þór í fyrstu umferð.

Þeir unnu Stjörnumenn, 4-2, í Garðabæ. Lúkas Logi Heimsson skoraði snemma leiks. Innkastið var tekið stutt á Adam Ægi Pálsson, sem kom honum út á Lúkas Loga sem stóð fyrir utan teiginn. Hann lét vaða úr löngu færi, beint niður í vinstra hornið.

Andri Rúnar Bjarnason jafnaði metin á 17. mínútu. Einföld uppskrift eftir hornspyrnu. Daníel Finns Matthíasson stýrði henni beint á Andra Rúnar sem skallaði boltann í netið.

Valsarar svöruðu. Tryggvi Hrafn Haraldsson fékk sendingu í gegn á vængnum, tók skotið fyrir utan sem fór yfir Árna Snæ Ólafsson í markinu.

Aftur jafnaði Andri Rúnar þegar sex mínútur voru eftir af fyrri hálfleiknum. Birnir Snær Ingason var sendur í gegn, Frederik Schram sá við honum áður en Andri hirti frákastið og skoraði.

Allt jafnt í hálfleik, en Valsarar náðu að tryggja sér stigin þrjú í þeim síðari.

Tryggvi Hrafn gerði annað mark sitt á 55. mínútu er hann náði að snúa sér og setti boltann undir Árna Snæ, sem virtist hafa séð boltann seint og ekki skutlað sér af fullum krafti.

Bæði lið börðust um næsta mark leiksins, en það féll í hlut Vals er Bjarni Mark Duffield skoraði frábært klippumark eftir hornspyrnu undir lok leiks.

Þriðji sigurinn í röð hjá Val sem er með níu stig eftir fjórar umferðir en Stjarnan með aðeins sex stig.

Fjögurra marka sigur hjá meisturunum

Víkingur vann ÍA 4-0 í Víkinni þar sem öll mörkin voru skoruð í síðari hálfleik.

Fyrri hálfleikurinn var ekki neitt svakalega líflegur, en það lifnaði þó aðeins yfir honum á síðustu mínútunum þar sem Gísli Laxdal átti tilraun í slá og þá varði Ingvar Jónsson frá honum stuttu síðar.

Staðan í hálfleik markalaus en Víkingar völtuðu yfir Skagamenn í þeim síðari.

Elías Már Ómarsson skoraði á 55. mínútu eftir hornspyrnu þar sem boltinn var hreinsaður út í teiginn og náði Elías að skora af stuttu færi.

Elías og Valdimar Þór Ingimundarson bjuggu til næsta mark þar sem Elías kom erfiðum bolta á Valdimar sem hamraði honum á lofti í netið.

Viktor Örlygur Andrason og Elías gerðu út um leikinn undir lokin, en Viktor skoraði stórkostlegt mark á 85. mínútu með gullfallegu marki áður en Elías Már gerði út um leikinn undir lokin með marki af stuttu færi.

Víkingar eru með 10 stig í öðru sæti, tveimur stigum frá toppliði KR, en ÍA með aðeins 2 stig.

Blikar í stuði gegn Þór

Breiðablik vann nýliða Þór, 4-0, á Kópavogsvelli.

Blikar voru með þetta frá fyrstu mínútu og mættu gríðarlega vel stemmdir.

Það kom því lítið á óvart þegar Kristófer Ingi Kristinsson setti boltann í markið á 20. mínútu. Ágúst Orri Þorsteinsson fann Kristófer sem skoraði gott mark.

Þórsarar fengu sín færi en nýttu ekki. Síðari hálfleikur byrjaði eins og sá fyrri þar sem Blikar voru að ógna og kom annað markið fyrir rest.

Anton Logi Lúðvíksson skoraði eftir fallega sendingu frá Aroni Bjarnasyni. Þægileg forysta, en eftir markið setti Þór pressu á Blika og fengu tvö mjög góð færi.

Anton Ari Einarsson varði frábærlega frá Atla Sigurjónssyni í slá og þá var mark dæmt af Sigfúsi Fannari Gunnarssyni fyrir að hafa handleikið boltann.

Þórsarar voru að gera sig gildandi og var að færast nær marki, en þá komu Blikar og gerðu út um leikinn með tveimur mörkum undir lokin.

Davíð Ingvarsson skoraði með skalla á 85. mínútu og þá gerði Óli Valur Ómarsson fjórða markið undir lok leiks. Góður sigur hjá Blikum sem eru með 8 stig í 4. sæti en Þór með 6 stig í 7. sæti.

Stjarnan 2 - 4 Valur
0-1 Lúkas Logi Heimisson ('3 )
1-1 Andri Rúnar Bjarnason ('17 )
1-2 Tryggvi Hrafn Haraldsson ('23 )
2-2 Andri Rúnar Bjarnason ('39 )
2-3 Tryggvi Hrafn Haraldsson ('55 )
2-4 Bjarni Mark Antonsson ('89 )
Lestu um leikinn

Víkingur R. 4 - 0 ÍA
1-0 Elías Már Ómarsson ('55 )
2-0 Valdimar Þór Ingimundarson ('62 )
3-0 Viktor Örlygur Andrason ('85 )
4-0 Elías Már Ómarsson ('89 )
Lestu um leikinn

Breiðablik 4 - 0 Þór
1-0 Kristófer Ingi Kristinsson ('20 )
2-0 Anton Logi Lúðvíksson ('64 )
3-0 Davíð Ingvarsson ('86 )
4-0 Óli Valur Ómarsson ('93 )
Lestu um leikinn
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 4 4 0 0 18 - 8 +10 12
2.    Víkingur R. 4 3 1 0 10 - 3 +7 10
3.    Valur 4 3 0 1 10 - 5 +5 9
4.    Fram 4 2 1 1 11 - 6 +5 7
5.    Stjarnan 4 2 0 2 10 - 11 -1 6
6.    Þór 3 2 0 1 5 - 6 -1 6
7.    Breiðablik 3 1 2 0 2 - 1 +1 5
8.    Keflavík 4 1 1 2 5 - 7 -2 4
9.    ÍA 4 0 2 2 4 - 9 -5 2
10.    KA 4 0 1 3 4 - 8 -4 1
11.    FH 4 0 1 3 5 - 11 -6 1
12.    ÍBV 4 0 1 3 5 - 14 -9 1
Slapp
banner
banner
banner