Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 27. apríl 2026 22:22
Brynjar Ingi Erluson
Carrick um Meistaradeildarsætið: Ekki gefið
Michael Carrick var sáttur með sína menn
Michael Carrick var sáttur með sína menn
Mynd: EPA
Casemiro skoraði með skalla eftir vel útfærða hornspyrnu
Casemiro skoraði með skalla eftir vel útfærða hornspyrnu
Mynd: EPA
Michael Carrick, stjóri Manchester United, var ánægður með frammistöðu sinna manna og taldi úrslitin mikilvægari en hvernig leikurinn spilaðist í 2-1 sigrinum á Brentford.

Casemiro og Benjamin Sesko skoruðu mörk United í leiknum en Brentford fékk urmul af færum til þess að skora.

Carrick þurfti að bregðast við því, en þó það hafi verið mjótt á mununum segir hann að það séu úrslitin sem skipta mestu máli.

„Þetta var mjög opið á köflum. Við byrjuðum leikinn frábærlega og vorum með ágætis stjórn, en þurftum að halda út. Það var ýtt á okkur í kvöld, en þetta er sá tími ársins þar sem úrslitin eru mikilvægari,“ sagði Carrick.

Casemiro skoraði fyrsta markið með skalla eftir skemmtilega útfærslu af hornspyrnu hjá Bruno Fernandes sem setti hann á Harry Maguire sem skallaði boltanum fyrir á Casemiro sem skoraði.

„Hann hefur skorað nokkur mikilvæg mörk fyrir okkur. Harry, Bruno og Casemiro eiga mjög gott samband. Við vildum mæta hættulegir til leiks og það strax i byrjun. Við vildum sýna sköpunargleðina og það er nákvæmlega það sem við gerðum.“

Sesko gerði annað markið undir lok fyrri hálfleiks sem var ótrúlega dýrmætt fyrir United.

„Það kom okkur í góða stöðu. Leikurinn var aldrei dauður og við reyndum að stýra því með þessum breytingum í hálfleik og þá virkuðum við með meiri stjórn og vorum bara í góðum málum. Við gátum ekki beðið um mikið meira, en það voru viss svæði sem við áttum að stjórna betur. Strákarnir sýndu mikla reynslu og náðu að halda út. Þrjú stór sig fyrir okkur og gott að geta tekið þriðja sigurinn í röð.“

Man Utd er einum sigri frá því að tryggja Meistaradeildarsætið, en Carrick segir það alls ekki hafa verið gefið.

„Það var ekki gefið á ákveðnum tímapunkti tímabilsins þar sem við vorum ekki líklegir. Núna erum við í góðri stöðu og viljum enda eins ofarlega á töflunni og við getum. Við munum halda áfram að keyra á það,“ sagði Carrick.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 22 7 5 64 26 +38 73
2 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
3 Man Utd 34 17 10 7 60 46 +14 61
4 Liverpool 34 17 7 10 57 44 +13 58
5 Aston Villa 34 17 7 10 47 42 +5 58
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 34 13 9 12 49 46 +3 48
10 Fulham 34 14 6 14 44 46 -2 48
11 Everton 34 13 8 13 41 41 0 47
12 Sunderland 34 12 10 12 36 45 -9 46
13 Crystal Palace 33 11 10 12 36 39 -3 43
14 Newcastle 34 12 6 16 46 50 -4 42
15 Leeds 34 9 13 12 44 51 -7 40
16 Nott. Forest 34 10 9 15 41 45 -4 39
17 West Ham 34 9 9 16 42 58 -16 36
18 Tottenham 34 8 10 16 43 53 -10 34
19 Burnley 34 4 8 22 34 68 -34 20
20 Wolves 34 3 8 23 24 62 -38 17
Slapp
banner
banner