Manchester Utd 2 - 1 Brentford
1-0 Casemiro ('11 )
2-0 Benjamin Sesko ('43 )
2-1 Mathias Jensen ('87 )
1-0 Casemiro ('11 )
2-0 Benjamin Sesko ('43 )
2-1 Mathias Jensen ('87 )
Manchester United er svo gott sem búið að tryggja Meistaradeildarsæti eftir 2-1 sigur liðsins á Brentford á Old Trafford í kvöld.
Brasilíski miðjumaðurinn Casemiro skoraði með skalla á 11. mínútu eftir hornspyrnu beint af æfingasvæðinu. Bruno Fernandes stýrði hornspyrnunni á hausinn á Harry Maguire sem skallaði hann á fjær á Casemiro sem var ekki í neinum vandræðum með að skora.
Fyrsta sinn sem Brentford lendir undir í deildinni síðan í febrúar en þeir brugðust vel við því. Liðið tók yfir og fékk Igor Thiago þrjú góð færi til þess að skora en fór illa að ráði sínu.
United tók við eftir það. Amad Diallo setti boltann í stöng og inn, en markið dæmt af vegna rangstöðu. Markið lá í loftinu og kom það United-megin.
Diallo vann tæklingu og keyrði Fernandes fram völlinn, lagði hann inn á Sesko sem lék á varnarmann áður en hann setti boltann í netið.
Michael Carrick var djarfur í hálfleik og breytti leikkerfinu í svipað og það sem Ruben Amorim notaði í stjóratíð sinni með United.
Þeir náðu að halda Brentford ágætlega í skefjum eftir það en þegar leið á leikinn fóru gestirnir að ógna. Dango Ouattara var einn gegn opnu marki á fjærstönginni, en setti boltann á einhvern ótrúlegan hátt í stöngina.
Brentford fékk fullt af færum nálægt markinu og því hálf kaldhæðnislegt að eina mark þeirra hafi komið fyrir utan teig. Mathias Jensen lék sér með boltann fyrir utan teig og hamraði honum í fjærhornið. Senne Lammens bugaður eftir að hafa átt annars ágætan leik í markinu.
Mikkel Damsgaard komst nálægt því að gera jöfnunarmarkið undir lokin en skallaði boltann beint á Lammens í markinu.
Færanýtingin ekki góð hjá Brentford sem fór tómhent heim af Old Trafford. Man Utd er í 3. sæti með 61 stig, einum sigri frá því að tryggja Meistaradeildarsætið, en Brentford í 9. sæti með 48 stig og var þetta mikið högg í baráttu þeirra um Evrópusæti.
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 34 | 22 | 7 | 5 | 64 | 26 | +38 | 73 |
| 2 | Man City | 33 | 21 | 7 | 5 | 66 | 29 | +37 | 70 |
| 3 | Man Utd | 34 | 17 | 10 | 7 | 60 | 46 | +14 | 61 |
| 4 | Liverpool | 34 | 17 | 7 | 10 | 57 | 44 | +13 | 58 |
| 5 | Aston Villa | 34 | 17 | 7 | 10 | 47 | 42 | +5 | 58 |
| 6 | Brighton | 34 | 13 | 11 | 10 | 48 | 39 | +9 | 50 |
| 7 | Bournemouth | 34 | 11 | 16 | 7 | 52 | 52 | 0 | 49 |
| 8 | Chelsea | 34 | 13 | 9 | 12 | 53 | 45 | +8 | 48 |
| 9 | Brentford | 34 | 13 | 9 | 12 | 49 | 46 | +3 | 48 |
| 10 | Fulham | 34 | 14 | 6 | 14 | 44 | 46 | -2 | 48 |
| 11 | Everton | 34 | 13 | 8 | 13 | 41 | 41 | 0 | 47 |
| 12 | Sunderland | 34 | 12 | 10 | 12 | 36 | 45 | -9 | 46 |
| 13 | Crystal Palace | 33 | 11 | 10 | 12 | 36 | 39 | -3 | 43 |
| 14 | Newcastle | 34 | 12 | 6 | 16 | 46 | 50 | -4 | 42 |
| 15 | Leeds | 34 | 9 | 13 | 12 | 44 | 51 | -7 | 40 |
| 16 | Nott. Forest | 34 | 10 | 9 | 15 | 41 | 45 | -4 | 39 |
| 17 | West Ham | 34 | 9 | 9 | 16 | 42 | 58 | -16 | 36 |
| 18 | Tottenham | 34 | 8 | 10 | 16 | 43 | 53 | -10 | 34 |
| 19 | Burnley | 34 | 4 | 8 | 22 | 34 | 68 | -34 | 20 |
| 20 | Wolves | 34 | 3 | 8 | 23 | 24 | 62 | -38 | 17 |



