Þór mætti í heimsókn til Breiðabliks í kvöld á Kópavogsvelli í fjórðu umferð Bestu Deildar Karla. Leiknum lauk með 4-0 tapi Þórsara og þjálfari Þórs hann Sigurður Heiðar Höskuldsson hafði nokkuð um leikinn að segja.
Lestu um leikinn: Breiðablik 4 - 0 Þór
„Vorum mjög góðir í fyrri hálfleik, besti hálfleikur sem við höfum haft. Leikplanið virtist vera ganga mjög vel upp þannig svekktur að vera ekki búin að skora allavega tvö mörk."
„Seinni hálfleikurinn stefndi í að við værum að gera rétta hluti. Vantaði loka hnikkið, komumst í dauðafæri. Skorum að mínu viti löglegt mark. Það hefði getað breytt leiknum."
„Varnarleikurinn í seinni var ekki okkur sæmandi. Þeir gátu spilað í gegnum okkur eins og þeir vildu. Þetta leit mjög illa út í 20-25mínútur."
Leikmannaglugginn lokar á miðvikudaginn og spurning hvort Þórs liðið muni líta eitthvað í kringum sig. „Nei, ekki þannig. Svolítið búnir að bíða og sjá hvort við þurfum eitthvað að bregðast við. Býst ekki við að það kominn neinn leikmaður inn fyrir gluggalok."
Framundan er heldur betur spennandi leikur hjá Þór. Heimaleikur gegn engum öðrum en KA þann 2.maí.
„Ég er rosalega spenntur, bæði lið að koma úr erfiðu tapi. Þannig það verður blóð á tönnunum hjá báðum liðum held ég. Þetta er ein mest spennandi leikur sem ég hef tekið þátt í þannig ég er mjög spenntur."
Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.























