Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
Adam Páls: Nú er farið að taka okkur alvarlega
Hemmi Hreiðars: Það var bara samningsatriði
Siggi Höskulds: Skoruðum löglegt mark
Óskar Hrafn: Meiri taugaspenna að hafa KR áhorfendur bak við sig
Jökull: Það er enginn ánægður í okkar klefa með frammistöðuna
Ólafur Ingi: Einhver narratíva þarna úti sem við erum ekki sammála
Danni Hafsteins: Ég vil spila alla leiki
Lárus Orri: Okkur vantar drápseðli
Sölvi Geir: Hann er búinn að sokka alla sem voru að gagnrýna hann
Amin Cosic hissa: Klobbaði einn og svo annan, bjóst svo við seinna gula þegar ég var rifinn niður
Jói Kalli ósáttur: Engin regla um hvað boltinn þarf að vera lengi í leik eftir að hagnaði er beitt
Þorri Stefán: Ég hef verið kallaður Joe Gomez Fram-liðsins
Rúnar Kristins: Við höfum fengið fyrirspurnir um Magnús
Davíð Helgi: Búinn að halda þessu fagni leyndu
Haraldur Freyr: Of langur tími til þess að 'suffera'
Enginn feluleikur hjá Hadda - „Ef þú ert ekki tilbúinn að leggja þig fram þá spilarðu ekki í KA“
Guðni Eiríks: Það er ekki tilfinningin sem ég fæ
Rúnar Páll: Við erum helvítis klaufar
Fyrsti leikurinn með Þór/KA síðan 2021 - „Þokkalega sanngjarnt"
Gunnar Heiðar: Við erum allir í 'revenge mode'
   mán 27. apríl 2026 22:53
Viktor Ingi Valgarðsson
Siggi Höskulds: Skoruðum löglegt mark
Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þór
Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þór
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór mætti í heimsókn til Breiðabliks í kvöld á Kópavogsvelli í fjórðu umferð Bestu Deildar Karla. Leiknum lauk með 4-0 tapi Þórsara og þjálfari Þórs hann Sigurður Heiðar Höskuldsson hafði nokkuð um leikinn að segja.


Lestu um leikinn: Breiðablik 4 -  0 Þór

Vorum mjög góðir í fyrri hálfleik, besti hálfleikur sem við höfum haft. Leikplanið virtist vera ganga mjög vel upp þannig  svekktur að vera ekki búin að skora allavega tvö mörk."

Seinni hálfleikurinn stefndi í að við værum að gera rétta hluti. Vantaði loka hnikkið, komumst í dauðafæri. Skorum að mínu viti löglegt mark. Það hefði getað breytt leiknum."


„Varnarleikurinn í seinni  var ekki okkur sæmandi. Þeir gátu spilað í gegnum okkur eins og þeir vildu. Þetta leit mjög illa út í 20-25mínútur."

Leikmannaglugginn lokar á miðvikudaginn og spurning hvort Þórs liðið muni líta eitthvað í kringum sig. „Nei, ekki þannig. Svolítið búnir að bíða og sjá hvort við þurfum eitthvað að bregðast við. Býst ekki við að það kominn neinn leikmaður inn fyrir gluggalok."

Framundan er heldur betur spennandi leikur hjá Þór. Heimaleikur gegn engum öðrum en KA þann 2.maí. 

Ég er rosalega spenntur, bæði lið að koma úr erfiðu tapi. Þannig það verður blóð á tönnunum hjá báðum liðum held ég. Þetta er ein mest spennandi leikur sem ég hef tekið þátt í þannig ég er mjög spenntur."

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.


Slapp
banner
banner
banner