Manchester United er 2-0 yfir gegn Brentford þegar klukkutími er búinn af leiknum. Casemiro og Benjamin Sesko skoruðu mörk United í fyrri hálfleiknum.
Casemiro kom United yfir á 11. mínútu með vel skipulagðri hornspyrnu sem Bruno Fernandes kom á Harry Maguire, sem skallaði hann á fjær á Casemiro sem stangaði boltann í netið.
Sjáðu markið hjá Casemiro
Benjamin Sesko tvöfaldaði forystuna á 42. mínútu eftir hraða sókn United. Bruno Fernandes lagði boltann inn á Sesko, sem tók eina gabbhreyfingu og skaut boltanum nánast í þaknetið.
Fernandes er kominn með 19 stoðsendingar og er einni frá því að jafna met Kevin de Bruyne og Thierry Henry, sem lögðu upp 20 mörk á einu tímabili.
United er að færast nær því að tryggja sér Meistaradeildarsæti fyrir næstu leiktíð og mun þessi sigur svo gott sem staðfesta það.
Sjáðu markið hjá Sesko hér


