Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 27. apríl 2026 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ýjar að því að Samúel spili ekki í kvöld - Upphæðin fjórar milljónir
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson
„Samkomulagið milli félaganna er trúnaðarmál, en ég held það kannski gefi auga leið að það hvort hann spili á móti Stjörnunni hafi komið til álykta í viðræðum félaganna. Ég geri ekki ráð fyrir að hann taki þátt í leiknum," segir Björn Steinar Jónsson, formaður fótboltadeildar Vals, við Fótbolta.net í dag.

Talsvert hefur verið rætt og ritað um hvort Samúel Kári Friðjónsson muni spila með Val gegn Stjörnunni í kvöld en Samúel var keyptur til Vals á miðvikudaginn í síðustu viku. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net kostaði Samúel um 12 milljónir króna og í Útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardag var fjallað um ákvæði sem segir að Stjarnan fái fjórar milljónir til viðbótar frá Val ef Samúel kemur við sögu í leiknum í kvöld.

Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, ýjaði að slíkt ákvæði væri í samningnum í samtali við Vísi í dag.

„Auðvitað vona ég bara að Sammi spili og við fáum aðeins að glíma við hann og hann við okkur. Ég held að það sé nú ekki hægt að setja þannig í samninga að menn megi ekki spila. En ég held að það geti vel verið að það komi einhvers staðar niður á verðmiðanum á leikmanninum," sagði Jökull m.a. við Vísi.

Valsarinn Benedikt Bóas Hinriksson var gestur í Útvarpsþættinum Fótbolti.net og leyndi sér ekki að hann var ósáttur við Stjörnumenn að setja ákvæði í kaupsamninginn.

„Hann má spila en Valur þarf þá að borga fjórar milljónir aukalega. Það er ákvæði um að hann megi ekki spila, við erum ekki að fara að henda fjórum milljónum í þetta," sagði Benedikt og átti þá við að upphæðin væri það há að hún kæmi í veg fyrir að leikmaðurinn gæti spilað leikinn. Hægt er að hlusta á þáttinn hér að neðan.

Leikur Stjörnunnar og Vals hefst klukkan 19:15 á Samsungvellinum og er liður í 4. umferð Bestu deildarinnar.
Útvarpsþátturinn - Öflugri en nokkru sinni fyrr
Slapp
banner
banner
banner