Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 27. maí 2019 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ancelotti: Koulibaly er ekki á förum
Mynd: Getty Images
Kalidou Koulibaly, miðvörður Napoli, hefur verið sterklega orðaður við Manchester United síðustu mánuði.

Hann er hins vegar ekki á förum frá Napoli í sumar. Þetta sagði Carlo Ancelotti, stjóri Napoli, eftir síðasta deildarleik tímabilsins á laugardag.

„Kalidou Koulibaly verður áfram hjá Napoli á næsta tímabili," sagði Ancelotti.

Það er nokkuð ljóst að Manchester United þarf að kaupa sér miðvörð í sumar. Matthijs de Ligt, varnarmaður Ajax, er einn af þeim sem er orðaður við félagið en líklegasti áfangastaður hans er Barcelona.

Í gær sagði Sky Sports að United væri búið að gefast upp á De Ligt og ætlaði núna að einbeita sér að Ruben Dias, varnarmanni Benfica.



Athugasemdir
banner
banner
banner