27.05.21 - 09:30
Elvar Geir Magnússon
Omar Richards til Bayern (Staðfest)

Omar Richards.

Mynd: Getty Images

Omar Richards.

Mynd: Getty Images
Þýskalandsmeistarar Bayern München eru búnir að tryggja sér enska vinstri bakvörðinn Omar Richards frá enska B-deildarfélaginu Reading.
Richards fer til Bayern í sumar á frjálsri sölu en hann hefur gert samning við Bæjara sem gildir til 2025.
Hann hefur fengið treyju númer þrjú og á að veita Alphonso Davies samkeppni um vinstri bakvarðarstöðuna.

„Það er mikill heiður fyrir mig að ganga í raðir FC Bayern. Draumur hefur ræst. Ég er stoltur af því að klæðast treyju eins besta félagsliðs í heimi," segir Richards.
Þýsk félagslið hafa mikið verið að horfa til Englands. Demarai Gray yfirgaf Leicester í janúar og gekk í raðir Bayer Leverkusen og Reece Oxford gekk alfarið í raðir Augsburg 2019. RB Leipzig fékk Ademola Lookman og Antony Evans sem kom upp úr unglingastarfi Everton gekk í raðir Paderborn. Þá þekkja lesendur allir hvað Jadon Sancho og Jude Bellingham hafa gert hjá Borussia Dortmund.