Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
   mið 27. maí 2026 23:59
Brynjar Ingi Erluson
Everton undirbýr tilboð í Wan-Bissaka
Mynd: EPA
Everton er að undirbúa 10 milljóna punda tilboð í enska hægri bakvörðinn Aaron Wan-Bissaka. Þetta kemur fram á TeamTalk og talkSPORT.

Wan-Bissaka og félagar hans í West Ham féllu úr ensku úrvalsdeildinni um helgina og ljóst er að margir leikmenn munu yfirgefa félagið í sumarglugganum.

Bakvörðurinn er eftirsóttur og ólíklegt að hann verði áfram í herbúðum Hamranna.

TeamTalk og talkSPORT segja að Everton sé að undirbúa tilboð í leikmanninn en David Moyes, stjóri félagsins, er mikill aðdáandi hans og vill styrkja hægri bakvarðarstöðuna fyrir næstu leiktíð.

Fulham, Newcastle United, Sunderland og Tottenham eru einnig sögð vera í baráttunni um Wan-Bissaka, sem er samningsbundinn West Ham til 2031.

Hann er fæddur og uppalinn á Englandi en þar sem hann fékk ekki tækifæri með enska A-landsliðinu ákvað hann að nýta rætur sínar til Kongó og skipta um landslið á síðasta ári. Hann á níu landsleiki fyrir þjóðina og verður í hópnum sem spilar á HM í sumar.
Slapp