Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
   mið 27. maí 2026 20:28
Elvar Geir Magnússon
Pochettino búinn að tilkynna bandaríska HM hópinn
Mynd: EPA
Mauricio Pochettino landsliðsþjálfari Bandaríkjanna hefur opinberað hópinn fyrir HM en mótið fer að stærstum hluta í Bandaríkjunum.

Fimm leikmenn í hópnum eru hjá enskum félagsliðum; Tyler Adams í Bournemouth, Antonee Robinson í Fulham, Chris Richards í Crystal Palace, Brenden Aaronson í Leeds og Haji Wright í Coventry.

Pochettino valdi sóknarmiðjumanninn Giovanni Reyna hjá Borussia Mönchengladbach en honum var næstum sparkað úr hópnum á HM 2022 vegna hegðunar sinnar á æfingu.

Bandaríski HM hópurinn:

Markverðir: Chris Brady (Chicago Fire), Matt Freese (New York City), Matt Turner (New England Revolution).

Varnarmenn: Max Arfsten (Columbus Crew), Sergino Dest (PSV Eindhoven), Alex Freeman (Villarreal), Mark McKenzie (Toulouse), Tim Ream (Charlotte FC), Chris Richards (Crystal Palace), Antonee Robinson (Fulham), Miles Robinson (Cincinnati), Joe Scally (Borussia Monchengladbach), Auston Trusty (Celtic).

Miðjumenn: Tyler Adams (Bournemouth), Sebastian Berhalter (Vancouver Whitecaps), Weston McKennie (Juventus), Cristian Roldan (Seattle Sounders), Brenden Aaronson (Leeds United), Christian Pulisic (AC Milan), Gio Reyna (Borussia Monchengladbach), Malik Tillman (Bayer Leverkusen), Tim Weah (Marseille), Alejandro Zendejas (Club America).

Sóknarmenn: Folarin Balogun (Monaco), Ricardo Pepi (PSV Eindhoven), Haji Wright (Coventry City).

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner
banner