Fotbolti.net
27.06.21 - 15:30
Victor Pálsson

Barcelona búið að selja Todibo (Staðfest)

Barcelona búið að selja Todibo (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn Jean-Clair Todibo hefur skrifað undir endanlegan samning við Nice í Frakklandi.
Þetta var staðfest í dag en Todibo er keyptur til Nice frá Barcelona fyrir 8,5 milljónir evra.

Þessi 21 árs gamli leikmaður var lánaður til Nice á síðustu leiktíð og stóð sig vel í sex mánuði hjá félaginu.

Tækifærin voru af skornum skammti á Nou Camp og ákvað Barcelona að leyfa leikmanninum að fara.

Todibo kom til Barcelona frá Toulouse árið 2019 en spilaði aðeins fjóra deildarleiki á Spáni.

Hann hefur spilað fyrir Schalke, Benfica og síðast Nice á láni síðan þá.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.