27.06.21 - 16:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Róbert Orri í Montreal (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er búið að staðfesta vistaskipti varnarmannsins Róberts Orra Þorkelssonar til Club de Foot Montréal í Kanada.
Róbert Orri er uppalinn hjá Aftureldingu en gekk í raðir Breiðabliks eftir tímabilið 2019.
Þessi 19 ára varnarmaður er mikið efni og var með íslenska U21 landsliðinu í lokakeppni Evrópumótsins fyrr á þessu ári.
Talað hefur verið um það í nokkurn tíma að aðeins væri tímaspursmál hvenær Róbert myndi halda út fyrir landsteinana í atvinnumennsku.
CF Montreal hét áður Montreal Impact en liðið leikur í MLS-deildinni í Norður-Ameríku.
Róbert skrifar undir samning til 2023 en möguleiki er á að framlengja hann til 2025.
„Þegar Luis Binks fór til Bologna, þá urðum við að bæta leikmanni við hópinn. Róbert er svipaður leikmaður," segir Olivier Renard, sem er yfirmaður knattspyrnumála hjá kanadíska félaginu.

.@robertorri11 est Montréalais.
— CF Montréal (@clubdefootmtl) June 27, 2021
FR >>> https://t.co/yrLHvjqtIr
EN >>> https://t.co/3GkF4zNseO#CFMTL pic.twitter.com/TP6OZQgxGn