Fotbolti.net
27.06.26 - 20:27
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fyrsta sinn í sögu Englands á HM

Harry Kane

Harry Kane

Canon

Mynd: EPA

England mætir Panama í lokaumferð L-riðils á HM í kvöld. Panama er úr leik en England er komið áfram, bara spurning hvar liðið endar í riðlinum.

Thomas Tuchel gerir fimm breytingar á byrjunarliði Englands eftir markalaust jafntefli gegn Gana í síðustu umferð.
Opta vekur athygli á því að fjórir leikmenn sem spiluðu fyrir utan Englands á síðasta tímabili eru í byrjunarliðinu. Þetta er í fyrsta sinn í sögu HM sem Englendingar stilla svo mörgum upp.

Þetta eru þeir Jude Bellingham (Real Madrid), Harry Kane (Bayern), Jarell Quansah (Leverkusen) og Marcus Rashford sem var á láni hjá Barcelona frá Man Utd á síðustu leiktíð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.