Fotbolti.net
27.07.26 - 10:20
Elvar Geir Magnússon

Býst við að Rogers og Palmer spili frábærlega saman

Morgan Rogers og Cole Palmer taka kuldafagnið.

Morgan Rogers og Cole Palmer taka kuldafagnið.

Canon

Mynd: Samsett/EPA

Xabi Alonso, stjóri Chelsea, segist ætla að spila Morgan Rogers og Cole Palmer saman. Hann gerir miklar væntingar eftir að hafa keypt Rogers og býst við að hann muni strax láta til sín taka.
„Kaup sem við stuðningsmenn höfum verið að öskra eftir“
TENGT EFNI

„Kaup sem við stuðningsmenn höfum verið að öskra eftir“

Miðjumaðurinn varð dýrasti breski leikmaður sögunnar þegar hann gekk til liðs við Chelsea frá Aston Villa í síðustu viku.

„Við þurftum mikilvægan leikmann í þessa stöðu og ég er viss um að það hafi ekki verið margir betri kostir í stöðunni en Morgan Rogers," segir Alonso.

„Maður þarf leikmenn sem geta haft áhrif samstundis og ég er viss um að Morgan muni ekki þurfa langan tíma til að aðlagast félaginu, leikkerfinu og liðsfélögunum."

Rogers hefur skrifað undir sex ára samning við Chelsea, með möguleika á framlengingu um eitt ár.

Alonso telur að Rogers og Palmer muni passa vel saman inni á vellinum. Utan vallar eru þeir bestu vinir en þeir voru saman í akademíu Manchester City og með landsliðum Englands.

„Ég er með áætlun. Ég er með hugmynd. Ég sé fyrir mér að þeir muni spila mjög vel saman, Við þurfum góða blöndu," segir Alonso.
Morgan Rogers.

Morgan Rogers.

Canon

Mynd: Chelsea

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.