Hin hliðin - Markús Máni Pétursson (KA)


Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Alltaf stutt í sprell.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stubbur í Love Island, það yrði TV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Balotelli, Vardy og Ramos, hvað gæti klikkað?

Mynd: Reuters

Snorri mesta efnið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vælir og rífur kjaft ekkert eðlilega mikið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alvöru ST.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Huge fan.

Mynd: EPA

Sá besti í klefanum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi Sig, segir sig sjálft.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Hann er miðvörður sem kom fyrst í KA 2021 eftir að hafa leikið með yngri flokkum KF/Dalvíkur. Hann spilaði sína fyrstu leiki með meistaraflokki KA í fyrra og sýndi að hann ætti erindi í efstu deild.
Í kvöld tekur KA á móti grönnunum í Þór og í tilefni af því sýnir Markús Máni á sér hina hliðina.
Gælunafn: Krúsi
Aldur: 20
Hjúskaparstaða: Föstu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Fyrsti leikurinn minn var á móti Víkingi, fékk einhverjar 20 mín. Ekkert minnisstæðilegt úr þeim leik, skít töpuðum 4-0 en ég fékk allavega ekki mark á mig
Uppáhalds drykkur: Bleik Orka/Grænn kristall
Uppáhalds matsölustaður: Spretturinn
Uppáhalds tölvuleikur: Prime fortnite á sínum tíma
Áttu hlutabréf eða rafmynt: Já en þau er helvíti rauð eins og staðan er núna
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Elska Suits, Harvey Specter að aura farma
Uppáhalds tónlistarmaður: Skepta í miklu uppáhaldi
Uppáhalds hlaðvarp: væntanlega Fotbolti.net
Uppáhalds samfélagsmiðill: TikTok ekkert betra en að skrolla smá fyrir svefninn
Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: Fotbolti.net
Fyndnasti Íslendingurinn: Egill Gillz, ekkert eðlilega fyndinn
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst:
Hæ aftur þú þarft að kaupa miða fyrir okkur á þórsleikinn. Forsala hefst á morgun í KA kl 16:00. Við ætlum öll 5
-mamma
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Þór, held ég myndi frekar hætta í fótbolta
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Emil Atla, alvöru ST
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Haddi, hann hefur hjálpað mér mikið
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Kjartan Halldórsson vælir og rífur kjaft ekkert eðlilega mikið
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Pabbi og mun alltaf vera
Sætasti sigurinn: 1-0 sigur á Þór í fyrsta grannaslag í 24 ár í efstu deild
Mestu vonbrigðin: Þór.
Uppáhalds lið í enska: Liverpool
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Gylfi Sig, segir sig sjálft
Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Snorri Kristinsson að mínu mati
Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Grímsi er helvíti huggulegur
Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Sara Björk
Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: CR7
Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Held ég myndi ekki breyta neinu en finnst að leikir mættu fljóta meira, orðið allt of soft
Uppáhalds staður á Íslandi: Akureyri aka City of joy
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Hrinti einhverjum snáða á 90. mín og fékk seinna gula eftir að hafa skorað og haldið hreinu í sama leik
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Keyri sveitahringinn og borða ostaslaufu fyrir leik
Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: UFC ef Gunni er að keppa og píluna um jólin
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike Tiempo
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Íslenskan hefði ekki komist í gegnum stúdentinn án mömmu
Vandræðalegasta augnablik: Þegar ég braut myndaramma heima hjá tengdó
Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Jamie Vardy, Mario Balotelli og Ramos, það yrði ekkert eðlilega gaman geggjaðar samræður og einhver vitleysa eftir mat
Bestur/best í klefanum og af hverju: Kári, hann hefur alltaf eitthvað skemmtilegt að segja
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Myndi elska að sjá Stubb í Love Island, það yrði allt of fyndið
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Flutti að heiman 16 ára
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Jeppe topp maður alltaf stutt í sprell
Hverju laugstu síðast: Sagðist vera slappur eftir leik og tók veikinda dag í vinnunni
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Hlaup
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi spyrja Virgil Van Dijk um treyju og seiga að ég væri huge fan
Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir Akureyrarslaginn: Bærinn er gulur og blár og mun alltaf vera.

Alltaf stutt í sprell.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stubbur í Love Island, það yrði TV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Balotelli, Vardy og Ramos, hvað gæti klikkað?

Mynd: Reuters

Snorri mesta efnið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vælir og rífur kjaft ekkert eðlilega mikið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alvöru ST.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Huge fan.

Mynd: EPA

Sá besti í klefanum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi Sig, segir sig sjálft.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

