27.08.26 - 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Nýliðarnir reyna aftur við ungan varnarmann City

Mynd: Man City

Mynd: Man City
Hinn 18 ára Stephen Mfuni' gæti farið frá Manchester CIty fyrir gluggalok. Coventry hefur haft augastað á enska unglingalandsliðsmanninum en hingað til hafa félögin ekki náð saman.
Mfuni lék í enska bikarnum með City í janúar og kláraði svo tímablið á láni hjá Watford í Championship deildinni.

Coventry var í viðræðum við City en hætti við að fá Mfuni fyrr í sumar. En núna er Coventry aftur mætt að borðinu og vill fá unga Englendinginn.
Hann kæmi á láni til nýliðanna í ensku úrvalsdeildinni en Coventry vann Championship deildina á síðasta tímabili.
Coventry hefur fengið þá Caleb Yirenkyi, Carl Rushworth, Sidiki Cherif, Loum Tchaouna, Aurele Amenda, Taiwo Awoniyi, Ethan Pinnock, Gustavo Hamer, Dan Bentley og Frank Onyeka í sumar.