Fotbolti.net
27.08.26 - 12:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Iraola um Barcola: Vonandi koma góðar fréttir fljótlega

Getur ekki lofað því að Gakpo verði áfram

Barcola

Barcola

Canon

Mynd: EPA

Andoni Iraola, stjóri Liverpool, var spurður út í Bradley Barcola á fréttamannafundi í dag. Barcola er á leið til Liverpool frá PSG en í morgun var greint frá því að félögin hefðu náð samkomulagi sín á milli.

„Við erum að reyna kaupa í þá stöðu. Við getum ekki talað um leikmenn sem, á þessum tímapunkti, eru ekki okkar."
Liverpool hefur náð samkomulagi um Barcola
TENGT EFNI

Liverpool hefur náð samkomulagi um Barcola

„Við erum að reyna styrkja eða fylla í þá stöðu því við erum ekki með breiddina sem við viljum hafa. Vonandi koma góðar fréttir fljótlega."

Hann var í kjölfarið spurður út í Cody Gakpo sem er orðaður í burtu frá Liverpool og hafa Manchester City og Tottenham áhuga á honum.

„Þegar glugginn er opinn þá getur þú ekki lofað neinum neinu. Þú veist ekki hvað getur komið. Ég myndi vilja vita hvernig þetta spilast en ég veit ekki hvað gerist með okkar leikmenn. Ég get ekki lofað neinu," sagði Iraola.
Gakpo

Gakpo

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.