27.08.26 - 21:09
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Raphinha og Fermín aftur á skotskónum - Rodri þreytti frumraun

Rodri kom inn af bekknum í sínum fyrsta leik fyrir Barcelona

Mynd: EPA

Fermín er kominn með þrjú deildarmörk

Spánarmeistarar Barcelona unnu 2-0 sigur á Athletic Bilbao í La Liga deildinni á Spáni í kvöld.
Liðin áttust við í frestuðum leik úr 1. umferð deildarinnar, en leikjum Barcelona og Real Madrid var frestað þar sem leikmenn félaganna voru að snúa aftur eftir heimsmeistaramótið.
Brasilíski vængmaðurinn Raphinha hefur farið frábærlega af stað og skoraði annan leikinn í röð. Pedri átti gómsæta stungusendingu inn fyrir vörn Athletic, Raphinha lék á markvörðinn og lagði boltann í netið.
Fermín Lopez bætti öðru marki við átta mínútum fyrir leikslok. Karim Adeyemi bar boltann upp vinstra megin og sendi inn á vítateiginn en varnarmönnum Athletic mistókst að hreinsa frá. Boltinn barst til Fermín sem gat nánast gengið með hann í netið. Hann er nú kominn með þrjú deildarmörk, rétt eins og Raphinha.
Miðjumaðurinn Rodri þreytti frumraun sína með Barcelona í leiknum eftir kaupin frá Manchester City. Hann kom af bekknum á 63. mínútu. Góður sigur hjá Börsungum sem eru með fullt hús stiga líkt og Real Madrid. Athletic er hins vegar án stiga á botni deildarinnar.
Osasuna marði á sama tíma 2-1 endurkomusigur gegn Celta Vigo. Iago Aspas kom Celta yfir á 14. mínútu en leikurinn gjörbreyttist þegar Marcos Alonso, leikmaður heimamanna, fékk rautt spjald. Osasuna nýtti sér liðsmuninn og skoraði tvö mörk á tíu mínútna kafla til að tryggja sigurinn.
Celta 1 - 2 Osasuna
1-0 Iago Aspas ('14 )
1-1 Enrique Barja ('54 )
1-2 Ante Budimir ('64 , víti)
Rautt spjald: Marcos Alonso, Celta ('51)
Barcelona 2 - 0 Athletic
1-0 Raphinha ('37 )
2-0 Fermin Lopez ('82 )

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Barcelona | 2 | +6 | 6 |
| 2 | Real Madrid | 2 | +4 | 6 |
| 3 | Sevilla | 2 | +3 | 6 |
| 4 | Betis | 2 | +2 | 6 |
| 5 | Alaves | 2 | +3 | 4 |
| 6 | Atletico Madrid | 2 | +2 | 4 |
| 7 | Osasuna | 2 | +1 | 4 |
| 8 | Espanyol | 2 | +2 | 3 |
| 9 | Getafe | 2 | -2 | 3 |
| 10 | Villarreal | 2 | 0 | 2 |
| 11 | Deportivo | 2 | 0 | 2 |
| 12 | Celta | 2 | -1 | 1 |
| 13 | Vallecano | 2 | -1 | 1 |
| 14 | Racing Santander | 2 | -1 | 1 |
| 15 | Valencia | 2 | -1 | 1 |
| 16 | Malaga | 2 | -2 | 1 |
| 17 | Levante | 2 | -3 | 1 |
| 18 | Elche | 2 | -5 | 1 |
| 19 | Athletic | 2 | -3 | 0 |
| 20 | Real Sociedad | 2 | -4 | 0 |