Fotbolti.net
27.09.20 - 12:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Thiago og Alisson gætu misst af stórleiknum

Thiago og Alisson gætu misst af stórleiknum
Canon

Mynd: Getty Images

Þeir Alisson Becker og Thiago Alcantara æfðu ekki með Liverpool fyrir stórleikinn gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld.

Þeir verða skoðaðir aftur á morgun og séð til hvort þeir geta tekið þátt í leiknum sem er liður í 3. umferð deildarinnar.
Alisson missti af níu deildarleikjum á síðustu leiktíð og vann Liverpool alla þá leiki. Einn af þeim var 3-1 sigur á Arsenal á Anfield. Thiago gekk í raðir félagsins fyrir leikinn gegn Chelsea um síðustu helgi og lék seinni hálfleikinn í þeim leik.

Óvíst er hversu alvarleg meiðsli leikmannanna eru. Hópurinn kemur saman seinna í dag og ekki hefur verið útilokað að Alisson og Thiago geti mætt á þann viðburð.

Jordan Hendeson og Joel Matip eru áfram meiddir hjá Liverpool en Joe Gomez byrjaði að æfa á ný eftir meiðsli á föstudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.