Valgeir Lunddal Friðriksson, vinstri bakvörður Valsmanna, fékk að líta rauða spjaldið í leik Vals og Breiðabliks.
Fyrra gula spjaldð fékk hann fyrir ýtingar þegar Davíð Ingvarsson fór í hörku tæklingu á Hauk Pál Sigurðsson. Davíð fékk rautt spjald.
Fyrra gula spjaldð fékk hann fyrir ýtingar þegar Davíð Ingvarsson fór í hörku tæklingu á Hauk Pál Sigurðsson. Davíð fékk rautt spjald.
Valgeir fékk seinna gula spjaldið á 63. mínútu, þrem mínútum eftir það fyrra: „HVAÐ ER AÐ GERAST HÉRNA!!!??? Valgeir virðist hafa fengið gult spjald í látunum áðan. Nú fer Brynjólfur illa með hann og Valgeir hangir á honum og hrindir honum. Heimskt brot og jafnvel hægt að réttlæta seinna gula," skrifaði Kristófer Jónsson í textalýsingu frá leiknum.
Valgeir var mjög ósáttur með seinna gula spjaldið. Hjörvar Hafliðason og Kjartan Atli Kjartansson ræddu um þetta atvik í Pepsi Max-tilþrifunum.
„Valgeir nánast henti þessum leik í ruslið fyrir Valsmenn," sagði Hjörvar þegar Valgeir fékk seinna gula spjaldið. Hjörvar er á því að það væri hárréttur dómur.
Birkir Már Sævarsson, markaskorari Vals, var í viðtali við Fótbolti.net og fannst honum bæði spjöldin vera ódýr.
Athugasemdir