Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 27. október 2021 10:28
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Pogba segir Sun ljúga
Paul Pogba
Paul Pogba
Mynd: EPA
Paul Pogba skýtur á götublaðið Sun á Twitter-reikningi sínum í morgun. Pogba birtir færslu af frétt Sun þar sem Pogba er sagðður hafa hundsað stjóra sinn Ole Gunnar Solskjær eftir 0-5 tapið hjá Manchester United gegn Liverpool á sunnudag.

Pogba er í sömu fyrirsögn sagður hafa sett viðræður um nýjan samning við United á ís.

Pogba birtir færslu og skrifar: „Miklar lygar til að búa til fyrirsagnir."

Yfir frétt Sun setur Pogba svo 'FAKE NEWS' borða.

Pogba byrjaði leikinn á móti Liverpool á bekknum, kom inn á í hálfleik og fékk rautt spjald fyrir ljóta tæklingu eftir klukkutíma leik.


Athugasemdir
banner
banner