Fotbolti.net
27.11.21 - 15:30
Aksentije Milisic

Pioli framlengir samning sinn við AC Milan

Pioli framlengir samning sinn við AC Milan
Canon

Mynd: Getty Images

Stefano Pioli, þjálfari AC Milan, hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum við ítölsku risanna.
Hinn 56 ára gamli Pioli er nú með samning til ársins 2023 með möguleika á árs framlengingu.

Pioli hefur gert góða hluti hjá AC Milan en hann kom liðinu í Meistaradeild Evrópu á ný og þá er liðið í harðri toppbaráttu í Serie A deildinni á Ítalíu.

Milan á enn möguleika á að fara áfram í Meistaradeildinni eftir dramatískan sigur gegn Atletico Madrid á útivelli í síðustu umferð.

„Ég vil þakka félaginu fyrir þetta tækifæri, að þjálfa þetta lið og halda í mikilvæg gildi félagsins sem mega aldrei hverfa," sagði Pioli.

„Ég er stoltur af því sem við höfum afrekað til þessa, ég á í góðu sambandi við stjórnina, leikmennirnir eru að vaxa og ég er stoltur af ástríðunni sem allir í þessu félagi sýna."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.