Fotbolti.net
28.11.26 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

ÍA í leit að framkvæmdastjóra

ÍA í leit að framkvæmdastjóra
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA leitar að metnaðarfullum framkvæmdastjóra til að leiða félagið sem og að sjá um samskipta- og kynningarmál.

Ingimar Elí Hlynsson er að hætta sem framkvæmdastjóri ÍA en hann hefur verið í því starfi síðustu ár.

Um starfið
Um er að ræða fjölbreytt starf sem byggir á miklum samskiptum við starfsmenn félagsins, iðkendur á öllum aldri, sem og foreldra, aðstandendur, styrktaraðila og stuðningsmenn. Um er að ræða fullt starf.

Framkvæmdastjóri heyrir beint undir stjórn félagsins.
Ingimar Elí hættir hjá ÍA
TENGT EFNI

Ingimar Elí hættir hjá ÍA

Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirumsjón með fjármálum og daglegum rekstri
- Samningagerð og samskipti við samstarfsaðila
- Öflun og viðhald samstarfssamninga
- Eftirfylgni og innleiðing á stefnu og markmiðum félagsins
- Yfirumsjón með leyfiskerfi KSÍ
- Frumkvæði og nýsköpun við fjáröflun
- Ábyrgð á innleiðingu fyrirmyndar starfsmannastefnu og vinnustaðamenningar
- Undirbúningur stjórnarfunda og eftirfylgni ákvarðanatöku stjórnar

Menntunar- og hæfniskröfur
- Mikill áhugi á knattspyrnu og félagsstarfi
- Háskólapróf eða reynsla sem nýtist í starfi
- Reynsla af rekstri er nauðsynleg
- Sjálfsstæði í vinnubrögðum og rík vinnusemi
- Skipulags- og stjórnunarhæfileikar
- Þjónustulund
- Jákvæðni og frumkvæði í öllum málefnum félagsins
- Hæfileiki til að tjá sig í rituðu og töluðu máli fyrir hönd félagsins

Umsóknir skulu berast í gegnum ráðningakerfi Alfreð með nauðsynlegum fylgigögnum fyrir 11. desember 2026. Allar nánari upplýsingar veitir Eggert Herbertsson, formaður í síma 842 6704 eða með tölvupósti á [email protected]. Fullum trúnaði er heitið.

Heimild: Alfreð.is

ÍA í leit að framkvæmdastjóra
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.