Fotbolti.net
27.11.22 - 13:29
Aksentije Milisic

Inter Milan ætlar að bjóða 20 milljónir punda leikmann Fulham

Í leik með Bandaríkjunum.

Í leik með Bandaríkjunum.

Canon

Mynd: EPA

Antonee Robinson, bakvörður Fulham og bandaríska landsliðsins, gæti verið á leið til Ítalíu ef marka má nýjustu fregnir.

Þessi 25 ára gamli leikmaður spilaði vel í markalausu jafntefli gegn Englandi á föstudaginn en hann var nálægt því að ganga í raðir AC Milan fyrir tveimur árum.

Hann féll á læknisskoðun þá en nú gæti hann verið á leið til erkifjandanna en Inter Milan ætlar að bjóða tuttugu milljónir punda í kappann.

Ef Inter fær Robinson þá mun hann veita Federico Dimarco samkeppni en hann er ekki á Heimsmeistaramótinu eftir að Ítalíu mistókst að komast þangað.

Robinson hefur varla misst af leik hjá Fulham síðan hann gekk til liðsins árið 2020.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.