Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 28. janúar 2020 09:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Carragher: Mynd af Klopp á Ibiza á öllum forsíðum
Mynd: Getty Images
Jamie Carragher, goðsögn hjá Liverpool og sérfræðingur Sky Sports, tjáði sig í gær um ákvörðun Jurgen Klopp að halda sig við það að senda leikmenn í frí í febrúar. Klopp ætlar einnig sjálfur í frí.

Liverpool á að mæta Shrewsbury í endurteknum leik í 4. umferð ensku bikarkeppninnar og Klopp ætlar að láta vara/unglingaliðið til leiks.

Carragher er sammála Klopp í þessu máli fyrir utan eitt atriði. Hann er sammála með að hvíla helstu stjörnurnar en hann hefði viljað sjá Klopp sjálfan vera á hliðarlínunni.

„Klopp ætti að vera við stjórnvölinn, hans yngri leikmenn yrðu gífurlega glaðir annars verður mynd af honum með bjór á Ibiza á öllum forsíðum," skrifaði Carragher á Twitter.

Sjá einnig:
Ferdinand gagnrýnir Klopp: Á að vera á hliðarlínunni


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner