Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 28. janúar 2020 22:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Grealish: Ég elska að fara á Wembley
Mynd: Getty Images
Jack Grealish, fyrirliði Aston Villa, fær að leiða sitt lið út á Wembley í úrslitaleik deildabikarsins. Aston Villa vann 2-1 sigur á Leicester í kvöld og tryggði sér þar með sæti í úrslitaleiknum.

Þetta verður ekki í fyrsta sinn sem Grealish fer á Wembley með Aston Villa. Hann gerði það síðast undir lok síðasta tímabils þegar Villa vann Derby County í úrslitum umspilsins í Championship-deildinni.

„Þetta sýnir karakterinn sem við erum með í liðinu. Við lentum í erfiðum kafla fyrir jól - við náðum ekki fjórum sendingum í röð, hvað þá að vinna. Við höfum byrjað þetta ár vel," sagði Grealish eftir sigurinn í kvöld.

„Þetta verður í fimmta eða sjötta sinn sem ég fer á Wembley með Aston Villa. Ég elska að fara á Wembley."

Að lokum sagði Grealish: „Nú einbeitum við okkur að laugardeginum og reynum að komast frá neðstu fimm sætunum í deildinni."
Athugasemdir
banner
banner