Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   lau 28. janúar 2023 11:55
Aksentije Milisic
Nistelrooy vill fá Elanga til PSV
Mynd: Getty Images

Ruud van Nistelrooy, fyrrverandi leikmaður Manchester United og núverandi þjálfari PSV í Hollandi, vill fá Anthony Elanga á láni til liðsins frá Man Utd.


Hinn tvítugi Elanga hefur einungis byrjað sjö leiki á þessari leiktíð undir stjórn Erik ten Hag en hann var reglulega byrjunarliðsmaður á síðustu leiktíð undir stjórn Ralf Rangnick.

Svíinn var mikið orðaður við Everton fyrr í mánuðinum en ekkert hefur orðið úr því. Nú hefur PSV lýst miklum áhuga á leikmanninum.

Nistelrooy vill styrkja liðið fyrir komandi átök og tjáði hann sig aðeins um málin fyrir leikinn gegn Go Ahead Eagles.

„Auðvitað get ég ekki nefnt nöfn, en við erum að vinna á fullu í þessu. Það er mjög nauðsynlegt að styrkja hópinn," sagði Hollendingurinn.

Man Utd á leik gegn Reading í kvöld í enska bikarnum og spurning hvort Elanga fái að spreyta sig í þeim leik.


Athugasemdir
banner
banner
banner