Fotbolti.net
28.01.25 - 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Duran samþykkir að ganga til liðs við Al-Nassr

Duran samþykkir að ganga til liðs við Al-Nassr
Canon

Mynd: EPA

Jhon Duran, framherji Aston Villa, er á leið til sádí arabíska félagsins Al-Nassr en hann hefur samþykkt samningstilboð frá félaginu.
Franski miðillinn L'Equipe greinir frá þessu en þar kemur fram að Aston Villa sé tilbúið að samþykkja 70 milljón evra tilboð í leikmanninn.

Duran hefur verið varaskeifa fyrir Ollie Watkins hjá Villa en þrátt fyrir það hefur hann skorað 12 mörk í 29 leikjum í öllum keppnum á þessu tímabili.

Cristiano Ronaldo, Sadio Mane, Marcelo Brozovic og Aymeric Laporte eru meðal leikmanna liðsins. Stefano Pioli, fyrrum stjóri Milan og fleiri liða á Ítalíu, er stjóri liðsins
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.