Albert Guðmundsson lék allan leikinn með liði sínu AZ Alkmaar þegar liðið vann mjög sterkan heimasigur á Feyenoord. Þetta var níundi leikurinn í röð þar sem Albert byrjar í liði AZ.
Sigurinn er mjög mikilvægur í ljósi þess að AZ er tveimur stigum á eftir PSV í baráttunni um 2. sætið í deildinni. PSV gerði 1-1 jafntefli við Ajax fyrr í dag. Ajax er sex stigum á undan PSV.
Myron Boadu skoraði þrennu fyrir AZ í leiknum og Teun Koopmeiners eitt. Eran Zahavi kom PSV yfir gegn Ajax en Dusan Tadic jafnaði með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma.

AZ Alkmaar 4 - 2 Feyenoord
PSV 1 - 1 Ajax
Athugasemdir