Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 28. mars 2023 17:00
Elvar Geir Magnússon
Tuchel vill fá Mount til Bayern
Mynd: Getty Images
Thomas Tuchel, nýr stjóri Bayern München, hefur áhuga á að fá Mason Mount leikmann Chelsea til Bæjaralands næsta sumar.

Tuchel þekkir Mount vel frá því að hann stýrði Chelsea en þar var Mount lykilmaður. Saman unnu þeir Meistaradeildina 2021.

Bayern er þegar farið að plana sumargluggann en Tuchel tók við þegar Julian Nagelsmann var rekinn á dögunum.

Framtíð hins 24 ára gamla Mount hefur verið í umræðunni en viðræður hans við Chelsea um nýjan samning hafa gengið erfiðlega. Núgildandi samningur Mount rennur út næsta sumar.

Liverpool og Manchester United hafa einnig áhuga á að fá Mount ef eitthvað er að marka enska fjölmiðla.
Athugasemdir
banner
banner