Fotbolti.net
30.06.26 - 02:49
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu markið: Weghorst hafði strax áhrif og tilfinningarnar báru Gakpo ofurliði

Sjáðu markið: Weghorst hafði strax áhrif og tilfinningarnar báru Gakpo ofurliði
Canon

Mynd: EPA

Cody Gakpo hefur gengið í gegnum erfiða viku með unnustu sinni og var skrifað í skýin að hann myndi hafa áhrif í leik Hollands gegn Marokkó í nótt, en hann var rétt í þessu að koma þjóð sinni í forystu og nálgast Hollendingar 16-liða úrslitin.
Parið átti að eignast dreng í október en þau tilkynntu að hún hefði misst fóstur.

Hann fékk frí á æfingu í vikunni en byrjaði gegn Marokkó í nótt og skoraði síðan fyrir Hollendinga á 72. mínútu.

Wout Weghorst var ný kominn inn á þegar hann skallaði langa sendingu Bart Verbruggen í hlaupaleið Crysencio Summerville sem keyrði í átt að teignum. Hann féll við en náði að pota boltanum til hliðar á Gakpo sem hamraði boltanum í netið.

Gakpo hágrét eftir markið og söfnuðust liðsfélagar hans í kringum hann til að gefa honum næði. Miklar tilfinningar hjá Gakpo sem benti síðan til himins.

Sjáðu markið hér


Cody Gakpo in tears after scoring for Netherlands against Morocco
by
u/977x in
soccer
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.