Nagelsmann ætlar ekki að hætta

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Julian Nagelsmann, þjálfari þýska landsliðsins, segir lið sitt einfaldlega ekki hafa gert nóg til þess að verðskulda að fara áfram í 16-liða úrslit heimsmeistaramótsins.

TENGT EFNI
HM: Paragvæ sendi Þýskaland heim eftir ótrúlega vítakeppni
Hann var mjög ósáttur við frammistöðuna og hálfpartinn viðurkenndi að hafa gert mistök með að byrja með tvo framherja.
Nagelsmann valdi það að byrja Deniz Undav í stað Jamal Musiala, en það var svo sem ekki það eina sem var að frammistöðunni.
„Við vorum mjög hægir á boltann. Á einhverjum tímapunkti þurftum við að beita grófum aðferðum en þegar allt kemur til alls verðum við að vinna Paragvæ.“
„Við vorum með stjórn en það vantaði bitið fram á við. Það var varla einhver nærvera í teig þeirra en samt vorum við með tvo framherja og sérstaklega á fyrstu mínútunum þar sem við unnum engin einvígi,“ sagði Nagelsmann.
Nagelsmann er samningsbundinn þýska fótboltasambandinu til 2028 og segist hann reiðubúinn að halda áfram með liðið.
„ Ég ætla ekki að hætta. Ég er tilbúinn ef menn vilja það. Ef ekki, þá verða menn að segja mér það,“ sagði Nagelsmann.