Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   fös 28. mars 2025 11:30
Elvar Geir Magnússon
Óvíst hvort Palmer verði klár fyrir grannaslaginn
Cole Palmer.
Cole Palmer.
Mynd: EPA
Cole Palmer hefur ekki æft með liðsfélögum sínum hjá Chelsea síðan hann varð fyrir vöðvameiðslum fyrir landsleikjagluggann. Ekki er vitað hvort hann verði klár fyrir Lundúnaslaginn gegn Tottenham í næstu viku.

Meiðslin gerðu það að verkum að Palmer missti af síðasta deildarleik, gegn Arsenal fyrir um tveimur vikum, og var ekki með enska landsliðinu gegn Albaníu og Lettlandi.

Hann hefur enn ekki tekið þátt í æfingum að fullu og óvissa með mögulega þátttöku í næsta leik.

Sóknarmaðurinn Nicolas Jackson er að jafna sig af meiðslum og verður væntanlega klár í leikinn gegn Tottenham eftir tvo mánuði á meiðslalistanum.

Chelsea er í fjórða sæti í ensku úrvalsdeildinni og í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti. Palmer er lykilmaður liðsins og er með 14 deildarmörk og 6 stoðsendingar.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 32 21 7 4 62 24 +38 70
2 Man City 31 19 7 5 63 28 +35 64
3 Man Utd 32 15 10 7 57 45 +12 55
4 Aston Villa 32 16 7 9 43 38 +5 55
5 Liverpool 32 15 7 10 52 42 +10 52
6 Chelsea 32 13 9 10 53 41 +12 48
7 Brentford 32 13 8 11 48 44 +4 47
8 Everton 32 13 8 11 39 37 +2 47
9 Brighton 32 12 10 10 43 37 +6 46
10 Sunderland 32 12 10 10 33 36 -3 46
11 Bournemouth 32 10 15 7 48 49 -1 45
12 Fulham 32 13 5 14 43 46 -3 44
13 Crystal Palace 31 11 9 11 35 36 -1 42
14 Newcastle 32 12 6 14 45 47 -2 42
15 Leeds 32 8 12 12 39 49 -10 36
16 Nott. Forest 32 8 9 15 32 44 -12 33
17 West Ham 32 8 8 16 40 57 -17 32
18 Tottenham 32 7 9 16 40 51 -11 30
19 Burnley 32 4 8 20 33 63 -30 20
20 Wolves 32 3 8 21 24 58 -34 17
Slapp
banner
banner