Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 21:51
Ívan Guðjón Baldursson
66 ár síðan níu mörk voru skoruð
Mynd: EPA
Mynd: EPA
PSG vann fyrri undanúrslitaleik Meistaradeildarinnar 5-4 gegn FC Bayern í kvöld sem er markamet í keppninni.

Það þarf að fara 66 ár aftur í tímann til að finna annan undanúrslitaleik með svipaða markaskorun, þegar Eintracht Frankfurt skoraði sex mörk á útivelli gegn Rangers í Glasgow í gömlu Evrópukeppninni árið 1960.

Lokatölur á Ibrox urðu 3-6 fyrir Frankfurt en fyrri leiknum hafði lokið með 6-1 sigri þýska liðsins á heimavelli. Samanlagðar lokatölur undanúrslitanna 1960 voru því 12-4 fyrir Frankfurt.

Það verður spennandi að fylgjast með hvort stórveldunum Bayern og PSG takist að bæta þetta gamla met í seinni leiknum sem verður leikinn í München miðvikudagskvöldið í næstu viku.

Liðin þurfa að skora sjö mörk í München til að jafna metið og því er enn langt í land. Hins vegar eru liðin aðeins fjórum mörkum frá því að jafna undanúrslitametið í Meistaradeildinni frá því að keppnin var stofnuð árið 1992.

Liverpool vann Roma samanlagt 7-6 í 13-marka undanúrslitaeinvígum árið 2018.

   28.04.2026 20:40
Níu mörk komin í sögulegan undanúrslitaleik

Slapp
banner
banner
banner