Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 21:59
Ívan Guðjón Baldursson
Harry Kane: Varnarlínan var framúrskarandi
Harry Kane og félagar klöppuðu fyrir stuðningsmönnum sem fylgdu liðinu til Parísar.
Harry Kane og félagar klöppuðu fyrir stuðningsmönnum sem fylgdu liðinu til Parísar.
Mynd: EPA
Markavélin Harry Kane skoraði eitt mark og lagði annað upp í 5-4 tapi FC Bayern gegn ríkjandi Evrópumeisturum PSG í undanúrslitaleik Meistaradeildarinnar í kvöld.

Kane svaraði spurningum að leikslokum og komu ummæli hans fjölmiðlamönnum á óvart þar sem hann hrósaði varnarlínu Bayern sem fékk fimm mörk á sig.

„Í dag sáuð þið tvö hágæða fótboltalið spila mikinn sóknarbolta. Við fengum harðan vítaspyrnudóm gegn okkur en við hefðum samt getað drepið leikinn í fyrri hálfleik. Svo lentum við undir og börðumst með kjafti og klóm til að komast aftur inn í leikinn. Við erum ennþá lifandi í þessu einvígi," sagði Kane, en PSG var með 5-2 forystu eftir 60 mínútna leik.

„Mér fannst varnarleikurinn vera magnaður á köflum þrátt fyrir að það hafi verið níu mörk skoruð. Stundum hafa sóknarmennirnir betur en í kvöld var varnarlínan framúrskarandi.

„Auðvitað eru hlutir sem við megum bæta en núna höfum við engu að tapa í seinni leiknum á Allianz. Vonandi geta stuðningsmennirnir ýtt okkur yfir endalínuna í heimaleiknum."

Slapp
banner
banner
banner