Sparkspekingurinn Gary Neville segist ekki hafa mikla trú á því að Arsenal verði Evrópumeistari í ár, en að liðið eigi mjög góðan möguleika á að vinna ensku úrvalsdeildina.
Neville er á því að Arsenal geti unnið Manchester City í titilbaráttunni á Englandi.
Meistaradeildin er hins vegar allt önnur skepna og er hann sannfærður um að Arsenal sé ekki besta liðið í undanúrslitum og minni líkur á árangri þar.
„Margir af þessum leikmönnum vita ekki hvernig á að vinna Meistaradeildina, en þeir hafa verið mjög nálægt í titilbaráttunni á Englandi og þeir vilja ekki klúðra því. Ég held að Mikel Arteta verði að keyra á þetta í hverjum einasta leik og ekki setja einn leik í forgang fram yfir einhvern annan, en hann veit að það er auðveldara að vinna ensku úrvalsdeildina frekar en Meistaradeildina.“
„Ég tel að það séu betri lið í undanúrslitunum en Arsenal og þetta er útsláttarkeppni. Þeir eiga þrjá leiki eftir og aðeins fjóra eftir í deildinni, þannig það væri alveg hægt að færa rök fyrir því að það sé auðvelt að vinna báðar keppnir, en ég sé þá ekki komast framhjá Atlético Madríd eða hinum undanúrslitaleiknum. Ég tel þá eiga betri möguleika á að vinna deildina,“ sagði Neville í hlaðvarpsþættinum Gary Neville's Podcast.
Arsenal mætir Atlético í fyrsta leik í undanúrslitum á miðvikudag og spilar síðan seinni leikinn í næstu viku. Í deildinni á liðið eftir að spila við Fulham, West Ham, Burnley og Crystal Palace, en liðið er með þriggja stiga forystu á toppnum og Man City með leik til góða.


