Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 22:31
Ívan Guðjón Baldursson
Luis Enrique: Besti leikur þjálfaraferilsins
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Luis Enrique þjálfari PSG var mjög hress eftir magnaðan sigur gegn FC Bayern í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

PSG lenti undir í fyrri hálfleik en snéri leiknum sér í hag og leiddi 5-2 eftir 60 mínútur. Gestirnir frá München náðu þó að minnka muninn niður í eitt mark og urðu lokatölur 5-4.

„Þetta var ótrúlegur fótboltaleikur, ég held að þetta sé besti leikur sem ég hef upplifað á þjálfaraferlinum. Það var magnað flæði í leiknum þar sem bæði lið reyndu að sýna gæðin sín og sækja til sigurs. Ég held að allir hafi notið þess að horfa á þennan fótboltaleik og ég er ánægður með sigurinn," sagði Enrique við Amazon Prime.

„Ég náði að halda mér rólegum fyrstu tvö eða þrjú mörkin en svo gleymdi ég mér í fjórða og fimmta markinu og það voru mistök því ég vissi að þeir gætu skorað aftur. Ég er búinn að þjálfa í meira en 15 ár og ég verð að segja að þetta var mest spennandi leikur sem ég man eftir."

Þetta eru stór orð frá Enrique sem var við stjórnvölinn hjá FC Barcelona árið 2017. Börsungar töpuðu 4-0 á útivelli gegn PSG í 16-liða úrslitum það árið en unnu svo heimaleikinn 6-1 til að komast í næstu umferð.

„Við höfðum spilað þrjá leiki gegn Bayern liðinu hans (Vincent) Kompany og við vissum að þetta yrði mjög erfitt. Þeir byrjuðu leikinn betur en við vorum sterkara liðið í seinni hálfleik. Þetta var mjög skemmtilegur og spennandi fótboltaleikur sem var gaman að horfa á.

„Það er mikilvægt fyrir okkur að sýna heiminum að svona á að spila fótbolta. Auðvitað er ekki gaman að fá fjögur mörk á sig sem þjálfari en ég er ánægður með sigurinn. Seinni leikurinn verður rosalega erfiður."


   28.04.2026 21:07
Meistaradeildin: Ótrúlegu markaregni lokið í París

Slapp
banner
banner
banner