Evrópumeistarar Paris Saint-Germain mæta Bayern München í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeild Evrópu á Parc des Princes klukkan 19:00 í kvöld.
Þetta eru án efa tvö sterkustu liðin í Evrópu þetta árið, en þau mættust í úrslitum fyrir sex árum þar sem Bæjarar höfðu betur, 1-0.
Sex leikmenn úr sigurliðinu eru enn á mála hjá Bayern, en það eru þeir Alphonso Davies, Joshua Kimmich, Leon Goretzka, Serge Gnabry, Manuel Neuer og Sven Ulreich. Þrír af þessum sex munu líklegast spila þetta undanúrslitaeinvígi.
Það sem vekur athygli er að aðeins einnúr PSG-liðinu 2020 er enn í liðinu. Það er brasilíski miðvörðurinn Marquinhos, sem er fyrirliði liðsins í dag.
Bayern vann þýsku deildina á dögunum og er komið í úrslit bikarsins, þannig öll einbeiting hjá þeim er á þessu einvígi á meðan PSG er nálægt því að finna frönsku deildina og er dottið úr leik í bikanrum.
Vitinha er eini leikmaðurinn hjá PSG sem gæti misst af leiknum á meðan Bayern verður án Gnabry og Raphael Guerreiro, og mögulega Tom Bischof og Lennart Karl.
Sigurvegarinn úr þessu einvígi mætir Arsenal eða Atlético Madríd í úrslitum.
Leikur dagsins:
19:00 PSG - Bayern


